almannatryggingar.
Frú forseti. Við ræðum hér um desembergreiðslu til öryrkja sem ég vona að allir þingmenn styðji heils hugar. En mig langaði hins vegar að gera athugasemd við það að þetta er núna þriðja árið í röð sem þetta frumvarp er flutt korter í jól, meira að segja flutt með svo stuttum fyrirvara í ár að það er nefndin sem leggur það fram en ekki ráðherra sjálfur. Það er sem sagt verið að bæta við í bráðabirgðaákvæði fyrir þetta ár að borguð sé út eingreiðsla. Það kemur manni mjög á óvart að við skulum vera að fara aftur og aftur með mál eins og þetta á hverju ári hér í gegn rétt fyrir þinglok, í stað þess að festa hreinlega þessa desembergreiðslu í lögum. Já, ég veit að það er búið að segja að það eigi að fara í allsherjarvinnu við að breyta lögum um almannatryggingar en þangað til væri það nú bæði vinnusparnaður hér innan þingsins að þetta væri bara fest sem grein sem væri alltaf í lögum og auk þess væru öryrkjar vissir um að þessi eingreiðsla kæmi. Það er ekki fyrr en bara korter í jól, hreint og klárt, á morgun eða hinn, sem þeir fá það staðfest að upphæðin, 66.381 kr., komi inn fyrir 31. desember. Við getum svo rifist um það hvort þetta sé ekki allt of lág upphæð, hvort það sé hægt að halda jól fyrir 66.000 kr. en ég ætla ekki að eyða tíma í það.