154. löggjafarþing — 51. fundur,  15. des. 2023.

Störf þingsins.

[11:36]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Við höfum sýnt það hér á þingi að þegar við tökum höndum saman getum við gert góða hluti og þá sérstaklega þegar við erum að berjast fyrir málefnum eins og í Covid-faraldrinum og núna í því sem er að ske á Suðurnesjum og í Grindavík. Þá tökum við höndum saman og gerum góða hluti og sjáum til þess að keyra mál fljótt og vel í gegnum þingið. Núna erum við að fara að samþykkja 66.301 kr. jólabónus fyrir öryrkja en einhvern veginn á undarlegan hátt tekst ríkisstjórninni, þótt henni hafi verið bent á það, að skilja eftir ákveðinn hóp sem er mjög illa staddur; öryrkjar sem eru að verða ellilífeyrisþegar, ellilífeyrisþegar sem eru á strípuðum bótum og líka ellilífeyrisþegar sem eru með 10% skerðingu, fá 10% minna en lægsta ellilífeyri og krónu á móti krónu skerðingar og veitti svo sannarlega ekki af að fá 66.380 kr. jólabónus. En það merkilegasta við þetta er að hérna koma stjórnarþingmenn upp í ræðupúlt og benda á það að öryrkjar og ellilífeyrisþegar séu að fá desemberuppbót. Það eru ekkert allir öryrkjar og ellilífeyrisþegar að fá desemberuppbót. Nei, þeir hafa séð til þess, stjórnarliðar undanfarinna áratuga, að nota lífeyrissjóð til að skerða desemberuppbót. Fáum við hér á þingi skerta desemberuppbót? Fá launamenn skerta desemberuppbót? Nei. Hvers vegna í ósköpunum getum við látið okkur detta það í hug að ráðast á gamalt fólk og öryrkja og skerða desemberuppbót þeirra? Skerða hana jafnvel svo mikið að það er ekki króna eftir, taka hana alla. Þetta er fjárhagslegt ofbeldi af verstu gerð.