Störf þingsins.
Hæstv. forseti. Hvers vegna svelta ráðamenn Samkeppniseftirlitið? spyr forseti ASÍ í aðsendri grein á Vísi í dag. Og það er ekki nema von að spurt sé. Fyrir liggur að fjárframlög til eftirlitsins hafa lækkað um 20% á síðustu tíu árum á föstu verðlagi á sama tíma og verkefnum eftirlitsins hefur fjölgað og efnahagsumsvif aukist um og yfir 35–40% í landinu. Það er pólitísk ákvörðun að svelta Samkeppniseftirlitið. Það er pólitísk ákvörðun um að grafa undan neytendavernd, grafa undan samkeppni í landinu og grafa undan jafnræði á milli fyrirtækja á markaði. Góð neytendavernd og heilbrigð samkeppni er vörn fyrir launafólk í landinu og því er ekki nema von að forseti ASÍ, Finnbjörn A. Hermannsson, spyrji þessarar spurningar í dag. Á síðasta áratug hafa ríkisstjórnir í þessu landi einsett sér að fjársvelta Samkeppniseftirlitið með tilheyrandi afleiðingum fyrir neytendur í þessu landi og fyrirtæki á markaði. Um þetta hefur verið fjallað m.a. í skýrslum Ríkisendurskoðunar og það verður að spyrja — það verður að spyrja hér, hæstv. forseti: Hverra hagsmuna er ríkisstjórn Íslands að gæta með þessari sveltistefnu gagnvart Samkeppniseftirlitinu? Hverra hagsmuna er verið að gæta? Það er alveg öruggt að það er ekki verið að gæta hagsmuna neytenda og smærri fyrirtækja á markaði. Það er hins vegar verið að byggja undir einokun og fákeppni í litlu hagkerfi þar sem miklar aðgangshindranir ríkja og það er erfitt að vera að stunda burðuga samkeppni. Þess vegna er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að við styrkjum og styðjum Samkeppniseftirlitið.