Störf þingsins.
Herra forseti. Þann 28. september sendi ég eftirfarandi spurningar til þáverandi fjármála- og efnahagsráðherra með ósk um skriflegt svar:
Hve margar barnafjölskyldur nutu óskertra barnabóta á árunum 2013–2023, greint eftir árum? Hve margar barnafjölskyldur alls nutu barnabóta á árunum 2013–2023, greint eftir árum? Hve margar barnafjölskyldur hefðu átt rétt á barnabótum ef engin skerðingarviðmið barnabóta væru tiltekin í lögum á árunum 2013–2023, greint eftir árum?
Nýjum hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra sendi ég sömu spurningar 16. október en engin svör hafa borist. Vegna vinnu efnahags- og viðskiptanefndar um mál nr. 2, um breytingar á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2024, voru sendar spurningar til fjármála- og efnahagsráðuneytisins um viðmið vaxtabóta og barnabóta til að undirbyggja breytingartillögur, til að áætla kostnað við slíkar breytingar og einnig um hvaða áhrif það hefði að breyta ekki viðmiðum á milli ára. Svar barst 13. nóvember um að áætlað væri að 5.000 færri heimili fengju vaxtabætur á næsta ári og að svör við barnabótaspurningum væru langt komin og yrðu send síðar. Engin svör sem hægt væri að nota við gerð breytingartillagna um vaxtabætur bárust nefndinni. Svarið sem kom var að það væri pólitísk ákvörðun stjórnvalda að beina húsnæðisstuðningi ekki í gegnum vaxtabætur. En spurningin var um tölur, um kostnað og viðmið en var ekki svarað. Vegna barnabóta var sagt að svarið væri væntanlegt innan tíðar í beinu framhaldi af yfirlestri. En, herra forseti, svarið hefur ekki borist enn og það er búið að afgreiða málið þar sem svör ráðuneytisins hefðu gagnast. Það er ólíðandi að ráðuneyti hunsi þingmenn og nefndir þingsins með þessum hætti. Forseti verður að beita sér fyrir hönd þingsins. Það verður að koma í veg fyrir að ráðuneyti standi í vegi fyrir því að þingmenn geti sinnt hlutverki sínu. (Forseti hringir.) Það eru ráðherrar sem starfa í umboði þingsins. Það er ekki öfugt, forseti.