154. löggjafarþing — 51. fundur,  15. des. 2023.

pólitísk umræða og þverpólitísk sátt.

[13:16]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Pólitísk umræða tekur auðvitað á sig ýmsar myndir en það er full ástæða til að bregðast við þegar einstaka þingmenn fullyrða eitthvað hér uppi í pontu um stefnu annarra flokka gegn betri vitund. Óþægindi Sjálfstæðisflokksins í þessari ríkisstjórnarsamstarfi fara ekki fram hjá mörgum og birtingarmyndin er ýmiss konar. Það var áhugavert að sjá hv. þm. Birgi Þórarinsson sparka hér í Samfylkinguna í ræðu sinni í störfunum í dag. Hv. þingmaður ákvað síðan að hnýta í Viðreisn í leiðinni með rangfærslum um að við aðhylltumst opin landamæri á Íslandi. Ég vil því nota tækifærið hér og benda á þá þverpólitísku vinnu sem á sér stað um útlendingamál að frumkvæði Viðreisnar þar sem markmiðið er að forðast umræðu svipaðri þeirri sem hv. þingmaður bryddaði upp á í störfunum. Hv. þingmaður mætti líka hafa í huga að ráðherra hans hæstv. dómsmálaráðherra, Guðrún Hafsteinsdóttir, hefur fagnað frumkvæði Viðreisnar í því að leita eftir þverpólitískri sátt og forðast skautun í umræðu í þessu erfiða máli.