154. löggjafarþing — 51. fundur,  15. des. 2023.

tóbaksvarnir.

226. mál
[13:23]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Við í Flokki fólksins styðjum þetta frumvarp þrátt fyrir að við gerum athugasemdir við það að ekki sé nógu heildstætt tekið á stefnu í tóbaksmálum því að hér á t.d. eingöngu að taka út bragðefnið mentól, sem er nú að mínum smekk einustu sígaretturnar sem mögulegt er að reykja á 20 ára fresti. En það er önnur saga. Hér erum við að glíma við alls konar bragðefni, hvort sem þau eru í munnpúðum eða hvað sem þetta heitir allt saman, í veipvökvum og öðru slíku og það virðist ekkert vera tekið á því. En hér erum við væntanlega að stíga fyrstu skref í þá átt og ég verð greinilega að reyna að flytja inn mitt mentól á 20 ára fresti einhvers staðar annars staðar frá. En við styðjum þetta frumvarp.