alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands fyrir árin 2024--2028.
Herra forseti. Við í Samfylkingunni styðjum málið og ég fagna líka samstöðu um það. Nú er það svo að Ísland greiðir aðeins þriðjung í þróunarsamvinnu af því sem þau lönd á Norðurlöndunum greiða sem gera best og við erum hálfdrættingar á við þau sem eru lökust á Norðurlöndunum. Okkar framlag hefur staðið í stað í allt of langan tíma. Í þessari stefnu er þó gefinn ádráttur um það að nú eigi loksins að bæta í. Það er undir okkur komið hvort þetta verður þá bara stefna og marklaus orð eða hvort því verði fylgt eftir í fjárlögum á næstu árum.