vopnalög.
Herra forseti. Þetta mál kom ekki fullkomið til okkar í nefndinni og margar af þeim breytingartillögum sem voru lagðar fram voru til mikilla bóta fyrir málið að mínu mati. Ég skil vandræðaganginn með þessa einu breytingartillögu en meðan allar hinar detta út líka þá sé ég mér ekki fært að styðja málið eins og það er. Ég vona svo sannarlega að allsherjar- og menntamálanefnd taki málið til skoðunar því að þótt maður sé hjartanlega sammála því meginmarkmiði sem er á bak við frumvarpið þá held ég að það megi færa mjög sterk rök fyrir því að það þurfi að skoða málið aðeins betur. Mig langar líka að nota tækifærið og beina því hér til hæstv. dómsmálaráðherra að flýta heildarendurskoðun laganna eins og til stendur.