vopnalög.
Virðulegur forseti. Ég á sæti í allsherjar- og menntamálanefnd og við höfum rætt þetta mál nokkuð ítarlega. Breytingartillagan sem hér var lögð til var sú að við mættum hafa safnvopn sem tengdust síðari heimsstyrjöldinni. Áður hafa verið fluttar inn 1.100 hálfsjálfvirkar og sjálfvirkar byssur og rifflar sem safnvopn. Ég tel að þessi glufa með síðari heimsstyrjöldina sé ekki örlítil glufa. Þetta voru gríðarleg átök sem áttu sér stað á þessum tíma eins og allir vita og ég held að við eigum að halda okkur við upphaflegu tillöguna um að fylla algerlega upp í þetta gat, en við munum ræða það nánar í janúar. Við höfum ekkert með hálfsjálfvirkar og sjálfvirkar byssur að gera í þessu samfélagi, hvorki sem kindabyssur, til rjúpnaveiða, hreindýraveiða eða til annars.