154. löggjafarþing — 51. fundur,  15. des. 2023.

vopnalög.

349. mál
[13:55]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Ég vil byrja á því að þakka meiri hlutanum fyrir að taka málefnalega í þær athugasemdir sem við komum með út af breytingartillögum meiri hlutans og taka málið aftur inn í nefnd. Þetta snýst líka um þá spurningu hvaða íþróttir þurfa hálfsjálfvirkar skammbyssur og riffla. Það er aukaatriði svo sem en það væri ágætt að fá svör við því, fá það á hreint. Svo eru þessi öfgarök, þar sem söfnun á hálfsjálfvirkum skammbyssum og rifflum er líkt við frímerkjasöfnun, sem er bara alls ekki rétt. Það er alveg eins hægt að spyrja: Hvað með að safna handsprengjum eða kjarnorkusprengjum eða eitthvað svoleiðis? Að sjálfsögðu erum við ekki þar á línunni en einhvers staðar drögum við línuna og ég vil draga hana við hálfsjálfvirk vopn yfirleitt, það er ekki eitthvað sem á að safna. Þau eiga heima á safni, tvímælalaust, en ekki inni á heimilum fólks í einhverjum einkasöfnum og þess háttar.