skattar og gjöld.
Herra forseti. Hér kennir ýmissa grasa. Við erum hér að tala um breytingar á lögum um gistináttaskatt, tekjuskatt, virðisaukaskatt, staðgreiðslu opinberra gjalda, innheimtu opinberra skatta og gjalda, lögum um gjald af áfengi og tóbaki, vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., útflutningi hrossa, höfundalögum, búvörulögum, lögum um utanríkisþjónustu Íslands, tollalögum, um aukatekjur ríkissjóðs og svo breytingar sem varða stöðu Grindvíkinga. Því er farið inn í mörg lög í þessum bandormi. Við í Samfylkingunni munum taka afstöðu til einstakra greina og einstakra breytingartillagna eins og okkur þykir best og skynsamlegast og með okkar lagi, þó að við munum síðan ekki geta stutt frumvarpið í heild þegar að því kemur.