skattar og gjöld.
Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. efnahags- og viðskiptanefnd fyrir samstarfið við vinnu þessa frumvarps. Það er alveg rétt að hér kennir ýmissa grasa og atkvæðagreiðslan mun sjálfsagt taka mið af því. Hæst bar auðvitað umfjöllun í nefndinni sem sneri að gistináttaskatti. Þar voru skiptar skoðanir og ýmis sjónarmið rædd. Við áttum okkur líka á því að þessi mál eru í stóra samhengi hlutanna í stöðugri endurskoðun hjá stjórnvöldum núna. En þetta er niðurstaðan og í öðrum málum þurfti líka að gæta jafnvægis og taka tillit til sjónarmiða. Ég vil sérstaklega vekja athygli á því að við erum að greiða atkvæði um lækkun á áfengisgjaldi til lítilla og sjálfstæðra framleiðenda. Þetta er afar gott og þýðingarmikið mál. Það verður kannski ekki mælt í einhverjum prómillum í lýðheilsulegu tilliti en er afar sterkt fyrir þessa framleiðendur sem hlut eiga að máli. Að lokum var sérstaklega farið ítarlega yfir þau málefni er snúa að Grindvíkingum og það er afar ánægjulegt hversu breið og víðtæk samstaða er um þau mál.