154. löggjafarþing — 51. fundur,  15. des. 2023.

skattar og gjöld.

468. mál
[14:07]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Það er komið víða við þetta árið í bandormi. Það sem er ánægjulegt hér og skiptir miklu máli fyrir ferðaþjónustu víða á landsbyggðinni er að áfengisgjaldið er lækkað til minni framleiðenda. Í Norðausturkjördæmi held ég að séu sjö, átta framleiðendur og minni brugghús sem þetta mun hafa mikil áhrif á. Þetta skiptir miklu máli á svæðunum í ferðaþjónustu, fyrir uppbyggingu atvinnulífs og er gott mál. Hér koma síðan fram breytingar á gistináttagjaldi og um kaup fyrirtækja og almennings á nýorkubílum. Hér er fjallað um skemmtiferðaskip í innanlandssiglingum, sem er nýtt umhverfi sem ekki hefur verið tekist á við áður en hefur þróast mjög hratt á undanförnum árum, og síðan stuðningsaðgerðir við Grindvíkinga. Ég vil kannski rétt koma inn á að ég er sammála hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni með það að við þurfum að fara að gera þetta fyrr og boða aðgerðir fyrr. Það þarf oft 6–9 mánuði til þess að taka nýja skatta inn og gjaldheimtu og það er það sem við ættum virkilega að vinna í þannig að við séum kannski tilbúin fyrir komandi áramót í mars eða apríl.