skattar og gjöld.
Virðulegur forseti. Með þessari breytingartillögu er lagt til að gistináttagjaldið renni til sveitarfélaganna. Það kemur fram í lögum um gistináttaskatt að honum sé ætlað til að greiða fyrir uppbyggingu innviða í ferðaþjónustu og þannig megi viðhalda og vernda fjölsótta ferðamannastaði og jafnframt stuðla að uppbyggingu svo tryggja megi öryggi á ferðamannastöðum. Sveitarfélögin þurfa sjálf að kosta mikið af þeirri uppbyggingu sem nauðsynleg er til að ná fyrrgreindum markmiðum. Því er mikilvægt að sveitarfélögin fái til sín gistináttaskattinn og í raun felst í því sanngirni. Ég furða mig á því að meiri hlutinn, svo ég tali nú ekki um landsbyggðarþingmenn, sé ekki tilbúinn til að styðja við tillögu sem þessa.