154. löggjafarþing — 51. fundur,  15. des. 2023.

skattar og gjöld.

468. mál
[14:12]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F):

Virðulegur forseti. Ég held að þetta sé mikilvæg breyting sem gerð var og til stóð að gera kannski svona umfangsmeiri breytingu á gistináttaskatti þegar tillagan kom til nefndarinnar. Ég held að þrepaskipting sé af hinu góða og ég veit að það er verið að vinna að frekari lengri tíma útfærslum sem snúa að þessu. Ég held að það þurfi líka að horfa til þess hversu praktískt það er fyrir greinina að tryggja það að skatturinn lendi þar sem hann á að lenda. Ég held að þetta séu sannarlega breytingar til bóta sem ég styð heils hugar og vonast síðan til þess, eins og hér hefur verið nefnt, að til lengri tíma sjáum við útfærslu sem mikil sátt er um, enda er greinin mjög mikilvæg og vaxandi.