skattar og gjöld.
Virðulegur forseti. Hér er svo sannarlega um mikilvægt mál að ræða og mikilvægt að þetta sé skoðað nánar. Spurningin er þessi: Viljum við taka persónuafslátt af fólki sem er að flýja til Spánar og er jafnvel tekjulágt eða ekki? Það er algjörlega í okkar höndum hvort við tökum persónuafslátt af fólki eða ekki. Ef við segjum já við þessu ákvæði erum við að gera það. Ef segjum nei erum við ekki að gera það. Svo einfalt er það. Ég styð óbreytt ástand. Ég styð það að fólk haldi persónuafslætti þó svo að það fari að búa á Spáni eða einhvers staðar annars staðar af því að það er ódýrara að lifa þar.