skattar og gjöld.
Forseti. Ég vil þakka meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar þá skynsamlegu niðurstöðu að halda áfram niðurfellingu virðisaukaskatts af rafhjólum og reiðhjólum. Satt best að segja var ég ekki mjög bjartsýnn eftir að hafa átt orðastað við hæstv. umhverfisráðherra hér fyrr í vikunni þar sem ég spurði hvort honum þætti ekki skynsamlegra að halda þessari ívilnun áfram frekar en að fella hana niður eins og lagt var til í frumvarpinu. Ráðherra var nokkuð niðri fyrir og hrópaði hér nei, nei, nei. — Ég segi já.