154. löggjafarþing — 51. fundur,  15. des. 2023.

skattar og gjöld.

468. mál
[14:35]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Brugghús skipta miklu máli í íslenskri ferðaþjónustu og sérstaklega í dreifðari byggðum landsins. Í dag eru 28 starfandi brugghús um land allt með hátt í 300 starfsmenn. Vorið 2022 lánaðist okkur, eftir nokkrar tilraunir, að heimila litlum brugghúsum að selja afurðir sínar á framleiðslustað. Það var mikið gæfuspor. En með þessari breytingu sem lögð er hér til í dag gerum við enn betur og höldum áfram að styðja við smærri brugghús landsins og þar með aukum við samkeppnishæfni þeirra við erlenda framleiðendur. Ég segi því stórt já við þessari skattalækkun á íslenska framleiðslu.