skattar og gjöld.
Herra forseti. Eins og kom fram hér áðan er ég mjög hlynntur þessu máli. Þetta er frelsismál, þetta skiptir máli. Við þekkjum það sem förum um landið, og hvað þá í Norðausturkjördæmi sem allir eiga náttúrlega að heimsækja reglulega, að þar eru víða þessi brugghús. Ég held, eftir lærða grein hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur um málið, að af þeim 28 brugghúsum sem eru í landinu séu sjö til átta í Norðausturkjördæmi. Þetta skiptir miklu máli til að krydda tilveruna, þetta skiptir miklu máli í ferðaþjónustu og hefur komið mjög sterkt inn í það umhverfi. Þannig að ég vildi bara rétt koma og fagna því að við séum loksins komin á þennan stað. Þetta er búið að vera í umræðu lengi í þinginu. Ég held að þetta muni ekki fara illa með lýðheilsumálin. (BjG: Þú veist það ekki.) Það er margt sem við vitum ekki. (Gripið fram í: Er óeining í stjórnameirihlutanum?) Nei, við erum glöð í stjórnarmeirihlutanum og fögnum þessu svo sannarlega, takk fyrir.