almennar íbúðir og húsnæðismál.
Virðulegur forseti. Við erum hér að fjalla um frumvarp til laga um breytingu á lögum um almennar íbúðir vegna hamfaranna í Grindavík. Ég er á þessu frumvarpi og jú, ég skal hreinlega og algjörlega taka undir það að fæðing þessa frumvarps var skrýtin og mjög erfið og virtist einhvern veginn vera komin á síðasta snúning. Það er ekki gott. Ég skal alveg vera sammála því að við eigum að viðhafa önnur vinnubrögð en ég skrifa þetta bara á ástandið, á það að við séum á síðasta snúningi hérna á þinginu og vonandi hafi orðið þarna einhver mistök sem ollu þessu. En ég horfi ekki á það, ég horfi á hvað er verið að gera í þessu frumvarpi. Um hvað snýst það? Það er það sem skiptir máli. Það er verið að taka utan um tekjulægstu fjölskyldurnar í Grindavík, reyna að tryggja að þær sem eru nú þegar í húsnæðishrakningum, eru jafnvel í sumarbústöðum, komist í öruggt skjól fyrir jól, í íbúðir.
Í þessu samhengi ættum við kannski að horfa á það hverjir það eru sem eiga að fara í þessar aðgerðir og það er Bjarg, sem er óhagnaðardrifið fasteignafélag á vegum verkalýðshreyfingarinnar. Ef við horfum bara á tilganginn hjá félaginu er hann að tryggja að enginn þurfi að borga meira en 25% af launum sínum í húsnæði. Ef við værum með það almennt gætum við nú aldeilis fagnað hérna. En ég vil líka benda á það í þessu samhengi, af því að þarna er ríkið að koma með þau 12% sem sveitarfélögin ættu koma með og sem eru þá samtals 30% núna og sveitarfélögin geta síðan jafnvel á þremur árum komist inn í þetta húsnæði og Bjarg haldið áfram að leigja það út ef Grindvíkingar geta snúið til baka — en þá ættum við að spyrja okkur: Hvers vegna í ósköpunum eru lífeyrissjóðirnir ekki einmitt að fjárfesta í svona? Nýjustu tölur sýna að 800 milljarðar hafa tapast í „gambli“ lífeyrissjóða inni á markaði, 16.000 íbúðir. Ég held að þetta væru enn þá fleiri íbúðir ef við reiknuðum það út. Bjarg leigufélag er að byggja sjálft og er að halda niðri byggingarkostnaði og kostnaði við íbúðir þannig að tekjulægsta fólkið eigi möguleika á því að leigja án þess að lenda í þeim hremmingum að hafa ekki efni á húsnæði eða í því að leigan stökkbreytist frá mánuði til mánaðar svo nemi tugum þúsunda, eins og við höfum orðið vör við hjá öryrkjum sem eru að fá allt að 60.000–70.000 kr. hækkun á húsaleigu á einum mánuði og er auðvitað grafalvarlegt mál.
Ég er líka sammála því að við eigum að vera tilbúin með svona úrræði. Við búum í hamfaralandi þar sem hvað sem er getur skeð, hvenær sem er, þannig að við ættum að vera tilbúin.
Ég vona bara að þetta mál komist fljótt í gegn. Eins og ég segi er þarna á bak við Bjarg, sem er óhagnaðardrifið, og þar inni gæti líka verið Brynja, sem er fyrir öryrkja, og Byggingafélag námsmanna. Þetta eru allt óhagnaðardrifin leigufélög sem eru að hugsa um þá sem hafa minnst handa á milli, þannig að þetta er hið besta mál. Ég vona heitt og innilega, af því að það er stefnt að því að Bjarg fái 60 íbúðir — við verðum að átta okkur á því að Bjarg er nú þegar með tíu íbúðir í Grindavík og biðlistarnir eru upp á 50. Þarna er því ekkert of mikill fjöldi og ef þörfin verður ekki nema fyrir 40 íbúðir þá verða bara 40 íbúðir, skildist mér á umræðunni í velferðarnefnd. En flott mál og ég vona heitt og innilega að það fljúgi í gegn.