154. löggjafarþing — 51. fundur,  15. des. 2023.

almennar íbúðir og húsnæðismál.

583. mál
[15:03]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Við erum hér að ræða eitt málið enn til stuðnings íbúum í Grindavík sem þurft hafa að yfirgefa heimili sín. Sem betur fer hefur þingið verið viljugt til að grípa til þeirra ráðstafana sem þarf til að halda utan um þennan hóp, fyrst með því að tryggja tekjur þeirra á einhvern hátt og síðan með húsnæðisstuðningi og nú erum við að horfa til þess að vinna að því að kaupa húsnæði fyrir þá Grindvíkinga sem ekki hafa getað náð sér í húsnæði sjálfir. Eins og allir vita og þekkja er erfitt um vik á húsnæðismarkaði, það er erfitt að fá húsnæði, það er erfitt að borga þá leigu sem oft er uppsett, þannig að sem betur fer er verið að grípa til þessara ráðstafana.

Við heyrum og heyrðum hér hjá hv. þingmanni áðan að það eru ekki allir sammála um þau vinnubrögð sem hafa verið viðhöfð í málinu en ég ætla ekki að gera það að umtalsefni hér heldur vil ég frekar bara fagna því að við séum að gera þetta á þennan hátt. Þetta er ekki alveg nýtt þó að þetta sé að koma inn svolítið seint og við ætlum hugsanlega að klára á morgun. Það mátti lesa um þetta verkefni strax í fjölmiðlum og sá ég t.d. í Morgunblaðinu 24. nóvember síðastliðinn að þar var birt frétt um að það ætti að leita til þeirra félaga sem til staðar væru til að auðvelda þetta verkefni. Þá var verið að horfa til Bríetar sem er leigufélag að stærstum hluta í eigu ríkisins og síðan Bjargs sem var stofnað á 100 ára afmæli Alþýðusambandsins árið 2016. Bjargi hefur verið ætlað að hjálpa til við að byggja íbúðir undir fólk sem hefur tiltölulega lágar tekjur, eða ekki endilega þá einstaklinga sem geta átt rétt á félagslegu kerfi sveitarfélaganna heldur tekjulága einstaklinga sem eru í vinnu en hafa ekki háar tekjur og hefur Bjarg verið mjög duglegt í því verkefni sínu og mun halda því áfram. Hér erum við í raun og veru að fjalla um Bjarg. Bríet er væntanlega til umfjöllunar inni í fjárlaganefnd og þar verða væntanlega samþykktir einhverjir fjármunir til að Bríet geti þá fjárfest í þeim íbúðum sem ætlunin er að kaupa. Eftir því sem mér skilst auglýsti Bríet eftir íbúðum og það var mikill áhugi og u.þ.b. 1.200 íbúðir sem stóðu til boða. Bríet virðist ætla að kaupa einhverjar 80 íbúðir í bili, þær þarf að fjármagna og sú fjármögnun þarf að fara í gegnum fjárlaganefnd og síðan að lokum til þingsins.

Við erum hér að skoða breytingar á fyrirkomulaginu sem Bjarg hefur verið að vinna eftir. Bjarg er, eins og hér hefur verið nefnt, óhagnaðardrifið leigufélag í eigu stéttarfélaga og hefur verið fjármagnað þannig að ríkið hefur lagt til stofnstyrki eða stofnframlög upp á 18% af byggingarkostnaði á móti 12% framlagi frá sveitarfélagi. Oft hefur það verið þannig að sveitarfélagið hefur getað fjármagnað þessi 12% með því að leggja til lóð undir byggingar og þá kannski ekkert þurft að leggja út í mikinn kostnað annan og síðan hefur Bjarg farið í það að byggja. Nú verður það ekki þannig heldur er Bjarg að fara að kaupa og þá ræðst auðvitað möguleikinn á verði þessara íbúða sem á síðan að skaffa undir, hugsanlega eða væntanlega, tekjulægri hópa í Grindavík — samkvæmt þeim upplýsingum sem bárust inn í velferðarnefnd í gærkvöldi eru annaðhvort 10 eða 11 einstaklingar sem eru í íbúðum hjá Bjargi í Grindavík og þeir ættu þá að sjálfsögðu rétt á íbúðum hjá Bjargi utan Grindavíkur verði þetta að veruleika. Því til viðbótar eru, að mér skildist, u.þ.b. 50 einstaklingar á biðlista hjá Bjargi uppi í Grindavík eftir íbúð og uppfylla þau tekjuskilyrði sem Bjarg setur, þannig að það er mikil eftirspurn eftir að komast inn í þetta úrræði sem Bjarg er. Bjarg hefur lýst yfir vilja til þess að kaupa 60 íbúðir og þá gætu þeir í raun og veru uppfyllt þarfir allra þeirra sem hafa verið í íbúð á vegum Bjargs í Grindavík en einnig þeirra sem hafa verið á biðlista eftir íbúð hjá Bjargi í Grindavík.

Þetta er að mínu mati mjög fínt verkefni að fara í en sá ljóður er á þessu að sveitarfélögin hafa ekki tekið þátt í verkefnum eins og þessu og lagt til eitthvert 12% framlag inn í íbúð sem á að fara að kaupa og heldur ekki þannig að sveitarfélag sé að leggja til fjármuni til að kaupa undir fólk sem er með lögheimili í öðru sveitarfélagi. Þess vegna þarf að grípa til þeirra breytinga að ríkið taki þá á sig þetta 30% framlag sem núna er verið að leggja til í þessu frumvarpi og kaupi þessar íbúðir. Það sem mér finnst líka áhugavert við þetta er að þessar íbúðir eru svo ekkert að fara neitt. Þær verða bara í þessum sveitarfélögum þar sem þær verða keyptar og sveitarfélögin hafa möguleika á að koma inn í þegar og ef íbúar Grindavíkur ná að flytja heim aftur. Þá geta sveitarfélögin komið inn í og keypt þennan 12% hlut og þar með verður þessi íbúð fyrir tekjulægri hópa í sveitarfélaginu sjálfu til allrar framtíðar. Ég held að það verði áhugi hjá sveitarfélögunum að fara inn í þetta þó að þau geti ekki stokkið til og borgað inn 12% miðað við stöðu sína núna, fjárhagsáætlanagerðin búin og fjármunum verið ráðstafað í önnur verkefni. Reiknað er með að þremur árum eftir að Grindvíkingar geta farið heim verði sveitarfélögin að koma inn eða einu og hálfu ári eftir að íbúðin hefur verið leigð til einhvers annars en Grindvíkinga. Bara til þess að láta ekki íbúðir standa auðar munu sveitarfélögin geta stokkið inn, sem ég held að sé bara af hinu góða.

Þetta er að mínu mati frábært verkefni, að fara í þetta með þessum hætti. Það er búið láta þannig á markaði að maður verður svolítið hissa að sjá allt í einu 1.200 íbúðir birtast sem maður gerði ekki ráð fyrir að væru til. Það er búið að vera að tala mikið um íbúðaskort en þegar Bríet auglýsir eftir íbúðum er ásóknin þessi, það eru 1.200 íbúðir sem hægt er að selja inn í þetta með litlum eða engum fyrirvara. En Bjarg er ekki alveg þar af því að Bjarg þarf að sjálfsögðu að horfa til þeirra tekjuviðmiða sem þar er horft til og þess að húsaleiga verði ekki meiri en sem nemur 25% af heildartekjum. Þannig að Bjarg þarf að vanda sig aðeins betur þegar íbúðir eru keyptar. Okkur skildist á fundinum í gær að það væri búið að finna sirka 10 íbúðir, hugsanlega aðrar 10–20 til viðbótar, mögulega fyrir jól. Við eigum auðvitað að keyra þetta í gegn alveg eins og við getum, á methraða, til að koma íbúum Grindavíkur í skjól fyrir jólin svo þau geti haldið jól eins og við hin. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)