154. löggjafarþing — 51. fundur, 15. des. 2023.
almennar íbúðir og húsnæðismál.
583. mál
Virðulegi forseti. Þetta er mikilvægt mál og mér sýnist það vel unnið. Við í Samfylkingunni styðjum þetta mál rétt eins og við höfum stutt og liðkað fyrir eins og kostur er öllum málum er varða Grindvíkinga og stuðning við Grindvíkinga vegna þeirra hörmunga sem hafa riðið yfir. Ég vil nota tækifærið hér og hvetja til áframhaldandi góðrar samstöðu og trúnaðartrausts milli stjórnar og stjórnarandstöðu í þessum aðgerðum.