154. löggjafarþing — 51. fundur,  15. des. 2023.

raforkulög.

541. mál
[16:04]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Með leyfi forseta, langar mig rétt að lesa upp úr Morgunblaðinu í morgun. Þar kemur fram:

„Þannig segir Þórunn Sveinbjarnardóttir, flokkssystir Jóhanns Páls og fyrrverandi umhverfisráðherra, um ummæli hans í blaðinu að „þetta sé frjálsleg túlkun á stefnu Samfylkingarinnar“, en vill ekki upplýsa um samtöl innan þingflokksins hvað þetta varðar. „Hann fer fram og lýsir sínum skoðunum. Ég byggi mína afstöðu á stefnu Samfylkingarinnar,“ segir Þórunn.“

Þá kemur þessi fína spurning:

„Ríkir þá ekki einhugur í þingflokknum um stefnuna í orkumálum? „Nei, kannski ekki, en hann verður þá að svara því. Mitt haldreipi er stefna Samfylkingarinnar og ég tala fyrir henni, hvort sem er innan þingflokks eða utan,“ segir Þórunn.“

Þetta er það sem kemur fram m.a. í Morgunblaðinu í dag. Það skiptir virkilega máli þegar um er að ræða pólitík á Íslandi að vita hvar fólk stendur og hvar við stöndum í orkumálum og ég hvet hv. þingmann til að taka þetta upp og enn sterkar, bæði hér í þinginu og í fjölmiðlum, og uppfræða okkur hin um þetta vegna þess að ég lít svo á að pólitískt sé þetta eitt af helstu málum, grunnmálum í íslensku samfélagi sem við erum að fara að fást við næstu 10–15 árin. Þetta verður stærsta málið, rafvæðing landsins er risamál. Þetta er gríðarlega mikið efnahagsmál og skiptir samkeppnishæfni landsins gríðarlegu máli.

Síðan tek ég undir umræðuna hjá hv. þingmanni hér áðan, eins og ég skildi hann a.m.k., ég skildi umræðu hans þannig. Þetta eru gríðarlega flókin lög. Sá sem hér stendur var í atvinnuveganefnd fyrir tveimur, þremur árum, var framsögumaður máls þegar við tókum svolítið raforkulögin í gegn og kynntist þessu. Mikið flækjustig, svolítið ógegnsætt og erfitt að tækla. Kerfið er lokað og þegar á að tryggja orku og raforkuöryggi, sem er þjóðaröryggismál á Íslandi, í lokuðu kerfi þar sem við treystum á græna orku, þá skiptir raforkukerfið og flutningskerfið gríðarlegu máli.

(Forseti (ÁsF): Ég minni þingmenn á ræðutímann.)