154. löggjafarþing — 51. fundur,  15. des. 2023.

raforkulög.

541. mál
[16:12]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Jóhanni Páli Jóhannssyni fyrir ágætissvör. En í þessu samhengi þá fékk ég nú kannski ekki alveg svar um hvernig við gætum séð þetta fyrir og hvað hugsanlega gæti gerst. En ég geri mér alveg fyllilega grein fyrir því og það gerum við, held ég, öll sem erum í atvinnuveganefnd að þær byrðar sem við erum að leggja á Landsvirkjun eru mjög miklar. Við gerum okkur öll grein fyrir því. En þetta snýst um jafnvægi, hvernig við stígum til jarðar í þessu máli. Nú er það svo að Landsvirkjun er að framleiða um 30% af þeirri orku sem minni framleiðslufyrirtækin eru að selja á markaði, þau eru að kaupa um 30% af Landsvirkjun af því sem þau selja inn á almenna markaðinn. Þannig að ég velti sömuleiðis fyrir mér þessum línudans sem hérna er stiginn og ég tek undir það að okkur vantar upplýsingar og er opinn fyrir því sem formaður nefndarinnar að leggjast í enn meiri vinnu. Og þá vil ég beina þeirri spurningu, virðulegur forseti, til hv. þingmanns hvort hann myndi telja það áhættunnar virði að við myndum bara bíða með málið og gefa okkur meiri tíma í vinnu og færum bara inn á nýja árið með vinnuna, tækjum rúnt á því enn frekar því að öll erum við sammála um það innan atvinnuveganefndar að það vantar upplýsingar inn í málið. Ég held að það sé þannig og við erum alltaf að læra nýtt og nýtt á hverjum degi hvað það varðar. Þannig að spurning mín, virðulegi forseti, (Forseti hringir.) til hv. þingmanns er hvort hv. þingmaður telji það áhættunnar virði að við gefum okkur enn meiri tíma og leggjum enn meiri vinnu í málið (Forseti hringir.) og þar af leiðandi myndum við ekki afgreiða það fyrr en kannski í lok janúar eða byrjun febrúar.

(Forseti (ÁsF): Ég minni þingmenn á ræðutímann.)