154. löggjafarþing — 51. fundur,  15. des. 2023.

raforkulög.

541. mál
[16:36]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Ég þakka kærlega. Ég gleymdi hreinlega, það getur gerst á síðustu metrunum, að lesa þann fyrirvara sem ég hafði lýst í ræðu minni að ég hefði sett við málið, á sama tíma og ég er einn af flutningsmönnum fyrir hönd atvinnuveganefndar og ég er á álitinu. En fyrirvari minn er á þann veg, með leyfi forseta, að frumvarpið sé viðbragð við þeirri alvarlegu stöðu sem framtaksleysi ríkisstjórnarinnar í orkumálum síðustu ár hefur leitt til. Ekki hafi verið gefinn nægilegur tími til að meta áhrif breytingartillögu nefndarinnar um að markaðsráðandi vinnslufyrirtæki, Landsvirkjun, beri að útvega um 73% af raforku inn á heildsölumarkað, þ.e. til heimila og smærri fyrirtækja. Markaðshlutdeild fyrirtækisins á þessum markaði hefur verið um tæplega 50% undanfarin ár. Frumvarpið er sett fram vegna fyrirsjáanlegs orkuskorts sem Landsvirkjun hefur m.a. ítrekað bent á. Erfitt sé að sjá hvernig fyrirtækið á að auka hlut sinn á heildsölumarkaði á sama tíma og virkjanakerfi þess er á fullum afköstum og orkan uppseld. Nefndin hefði þurft lengri tíma til að kanna hugsanlegar afleiðingar þessarar breytingar, þar með talið hvort Landsvirkjun þyrfti mögulega að ganga á gerða samninga við stórnotendur til að uppfylla þá lagaskyldu sem hér er verið að leggja á fyrirtækið varðandi aukna hlutdeild í sölu inn á heildsölumarkaðinn, til heimila og smærri fyrirtækja.