154. löggjafarþing — 51. fundur,  15. des. 2023.

raforkulög.

541. mál
[16:38]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Herra forseti. Hér erum við að ræða mjög mikilvægt mál og ljóst að þetta er erfitt mál og í rauninni ótrúlegt að við séum komin í þessa stöðu sem við erum að reyna að leysa hér. Í sjálfu sér má segja að það sé alvarlegt inngrip ef það þarf að grípa til þess sem er verið að ræða hér og frumvarpið snýst um.

Hv. þm. Óli Björn Kárason er sem framsögumaður málsins búinn að fara ágætlega yfir málið og reifa það, hvernig það stendur, en ég ætla bara rétt í lokin að koma aðeins inn á þessa almennu umræðu um þennan málaflokk. Ég hugsa að þetta sé kannski það sem maður hefur verið að ræða einna mest síðan maður kom inn á þing fyrir sjö árum, fyrir utan kannski flugvelli og slík mál, samgöngumálin. Þetta hefur sannarlega verið mjög ofarlega á listanum. Ég var fyrir rælni áðan að skoða fyrstu ræðu mína, í mars 2017. Hún endaði með þessum hætti, ég vitna bara í hana:

„Ég held satt að segja að þetta sé eitt af helstu verkefnum íslensks samfélags í dag og mikilvægt að þessi umræða nái inn á hið háa Alþingi. Auðvitað tengist það að mörgu leyti allt saman; orkuskiptin, það sem við vorum að ræða hér varðandi rammaáætlun og raforkukerfið. Ég vonast til að á næstu missirum förum við að taka umræðuna um raforkuflutningana og raforkukerfið í landinu af meiri krafti og á heilsteyptari hátt.“

Þetta var sagt fyrir rétt tæpum sjö árum. Fyrir sjö árum, 2016 eða 2017, í fyrri umræðunni um þetta mál, fyrir lok nóvember minnir mig, var ég einmitt að benda á það sem Landsnet var að vara við í skýrslu, sem ég vitnaði í þá, í hvað stefndi. Og það sem var varað við hefur gengið eftir.

Ég veit ekki hvað orsakar ákveðinn slóðaskap í þessum málum hjá okkur. Í ræðunni í mars 2017, sem ég vitnaði í áðan, kom ég inn á að það gæti verið að fólk á suðvesturhorni landsins væri orðið vant því að þurfa ekki að hugsa um þennan málaflokk, raforkumálin. Það hefur ekki orðið alvarlegur raforkuskortur eða rafmagnstruflanir á höfuðborgarsvæðinu í 30 ár eða síðan í kringum 1990. Fæðingin að höfuðborgarsvæðinu eru fjórar, fimm öflugar línur og mjög öflugt kerfi sem er sjálfsagt með því besta sem þekkist á heimsvísu. En það sem við þurfum að bæta og var ekki almennt í huga fólks og jafnvel stóriðjunnar og fleiri aðila — þá var jafnvel hugmyndin að það þyrfti ekkert að bæta í flutningskerfið úti á landsbyggðinni, að það þyrfti ekki að byggja upp byggðalínuna. Það eru örfá ár síðan þessi viðhorf voru uppi en þau hafa elst mjög illa, margt mjög illa. Umsagnir hér við þingið og það sem hefur verið sagt í ræðu og riti víða í samfélaginu, í blaðagreinum og annað, margt hefur elst mjög illa og það er hægt að rifja það upp síðar með nákvæmari hætti.

Hér er algjörlega um lykilmál að ræða í okkar samfélagi og kannski óþarfi að fara allt of djúpt í það. Ég vildi bara ítreka þetta og þann málflutning sem snýr að því að við flýtum því með öllum hætti að byggja upp flutningskerfið, hjartað, kjarnann í okkar orkukerfi, raforkukerfi þjóðarinnar, sem er flutningskerfi raforku, og að það verði farið í það hið allra fyrsta. Með því skapast líka möguleikar til að nýta aðra græna orkukosti, endurnýjanlega orkukosti, hvort sem það eru vatnsaflsvirkjanir samþykktar í nýtingarflokk, sem ekki er hægt að nýta í dag vegna þess að það er ekki til flutningskerfi til að flytja þá orku sem gæti orðið til við þær framkvæmdir. Við erum með nokkur svoleiðis dæmi. Við erum að fá vindorkulöggjöfina og til að þetta spili saman, vindurinn, vatnsaflið og jarðvarminn, öll þessi endurnýjanlega orka, þá þurfum við öflugt flutningskerfi. Þannig að mín tillaga í þessu er að það á að vera algjört forgangsverkefni að flýta með öllum mögulegum hætti að byggja upp flutningskerfið. Það hafa náðst mikilvæg skref með Kröflulínu 3 og Hólasandslínu 3 á milli Fljótsdalsvirkjunar og Rangárvalla við Akureyri en það á eftir að byggja Blöndulínu 3 milli Akureyrar og Hvalfjarðar og Holtavörðuheiðarlínu 1 og 3 og það á að vera algjört forgangsverkefni í dag. Í kerfisáætlun Landsnets eins og hún er í dag er reiknað með að þessum framkvæmdum ljúki 2030 eða 2032 en til þess að orkunýtni aukist — og við erum að sjá ástand skapast hér, minni úrkoma, það er núna ítrekað verri vatnsstaða í vatnslónum — þá held ég að við eigum að fara í það. Með því að skapa það öfluga kerfi getum við tengt græna orkuöflun vítt og breitt og marga góða kosti. Þannig eigum við að byggja þetta mál upp þannig að við þurfum ekki að vera að ræða svona mál. Við eigum ekki að lenda í þeirri stöðu, eins og við erum að lenda í núna, að vera komin alla leið út í þessa umræðu.

Ég veit að þetta er erfitt hjá hv. atvinnuveganefnd. Sjálfur var ég framsögumaður raforkulaga í nefndinni fyrir þremur árum þegar við tókum heildarendurskoðun á löggjöfinni þannig að ég þekki vel til, þetta eru mjög flókin verkefni, erfitt að setja sig inn í þau og flækjustigið með því meira sem gerist hér í þinginu. En við vonum að þetta fari allt vel og að það sem hv. atvinnuveganefnd er að vinna með hér fari allt vel og verði okkur öllum og landi og þjóð til góðs.