raforkulög.
Virðulegur forseti. Við fjöllum hér um löggjöf sem snýr að stofnun embættis skömmtunarstjóra rafmagns á Íslandi. Þetta er auðvitað ótrúleg staða sem við finnum okkur í, að í þessu landi gnægta þegar kemur að möguleikum grænnar orkuframleiðslu sé verið sé að samþykkja frumvarp sem heimilar skerðingu til að tryggja að það kvikni á ljósunum í stofum heimila og vatnið hitni í pottunum, svona þegar líður á næsta ár. Það eru auðvitað fleiri atriði sem fljóta upp núna í tengslum við það þegar þetta neyðarástand sem nú er að skapast verður fólki loksins ljóst. Það hefur því miður stefnt í þetta alllengi vegna þess hversu hægt hefur gengið að koma áfram framkvæmdum og framleiðslu nýrrar grænnar raforku og síðan auðvitað sömuleiðis þess slæma ástands sem verið hefur á flutningskerfunum um langa hríð. Þegar forverar okkar í stjórnmálunum voru að forma regluverkið og lagarammana sem umhverfismat og aðrir þættir tengdir raforkuframleiðslu og flutningsvirkjum raforku fellur undir, þá held ég að engum hafi dottið til hugar að við fyndum okkur í þeirri stöðu hér síðar að hvorki væri hægt að koma grænni orkuframleiðslu áfram né flytja orku á milli svæða.
Ég hvet stjórnvöld og ríkisstjórnina sem nú situr til að taka á sig rögg í þessum efnum. Það liggur núna fyrir að það er a.m.k. meiri hluti ef ekki aukinn meiri hluti hvað varðar stuðning við aukna og hraðari uppbyggingu orkukosta og orkuframleiðslu en nú stefnir í. Ég hef talað fyrir því að við ættum alvarlega að skoða það að setja sérlög um tiltekna raforkukosti, þar væri auðvitað Hvammsvirkjun fremst í röðinni og síðan tveir til þrír til viðbótar, það er útfærsluatriði. En í öllu falli þá sýnist mér það verkfæri sem rammaáætlun átti að vera ekki virka, verkfæri sem átti að leita sátta og leiða fram þá stöðu að það yrði með ígrunduðum hætti tekin afstaða til þeirra kosta sem á borðinu væru og leiddar fram þær leiðir sem sátt væri um annars vegar og hins vegar þær leiðir sem sátt væri um að nýta ekki — sátt um framleiðslu annars vegar og sátt um verndun hins vegar. Það sem hefur síðan komið á daginn er að um þá orkukosti sem fara í nýtingarflokk er bara engin sátt. Það er allt kært, það er þvælst fyrir og síðan, ef ekki vill betur til og annað dugar ekki, virðist Orkustofnun klúðra því sem upp á vantar, svona alla vega þegar við horfum til seinni tíma sögu. Þetta er grafalvarlegt ástand og nú finnum við okkur í þeirri stöðu að forma regluverk um skömmtunarstjóra raforku á Íslandi. Ég hreinlega veit ekki hvað þarf til ef þessi staða dugar ekki til að ríkisstjórnin taki á sig rögg. Ég held að yfirlýsingin sem ég gaf fyrir hönd þingflokks Miðflokksins og yfirlýsing þingflokks Viðreisnar sem hv. þm. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir gaf hér fyrir hönd þess ágæta flokks á mánudaginn og þau orð sem hafa borist úr herbúðum Samfylkingarinnar og Flokks fólksins ættu að tryggja að við kæmumst úr sporunum. En enn er ekkert nema vöflur að sjá á stjórnarflokkunum. Þetta frumvarp sem hér er til meðferðar er með einum eða öðrum hætti því sama marki brennt og svo mörg önnur mál ríkisstjórnarinnar. Það er ekki tekið á vandanum heldur settur plástur á svöðusár sem gæti jafnvel framlengt þá snúnu stöðu sem er uppi. Ég held að mér endist ekki tími til að taka dæmi um sambærileg mál þar sem virðist vera flótti frá því að taka á rót vandans hjá þeirri ríkisstjórn sem við nú sitjum uppi með.
Nú liggur fyrir álit meiri hluta nefndarinnar. Það eru tvö atriði sem lagðar eru til breytingar á, þær eru í sjálfu sér ágætar og ekki hægt að gagnrýna en það er þó rétt að hafa í huga að það sem snýr að því að stytta líftíma frumvarpsins eða laganna þegar þar að kemur, úr 24 mánuðum í 12, sólarlagsákvæðið svokallaða, er auðvitað hálfmerkingarlaust því að það blasir við öllum að það verður engin grundvallarbreyting á þessari stöðu innan þess tíma þannig að líftíminn verður framlengdur. Við getum gefið okkur það. Það góða við þetta er þó að við í þinginu náum í skottið á stjórnvöldum eftir 12 mánuði þegar kemur að því að framlengja þetta þrautamál og það er í sjálfu sér ágætt.
Hitt atriðið sem hefur verið gerð tillaga um breytingu á varðandi regluverkið er ákvarðanatökuaðilinn, hver verður landsreglarinn í þessu samhengi, nú er lagt til að það verði orkumálaráðherra sjálfur að fenginni tillögu orkumálastjóra. Áður átti orkumálastjóri að vera sá sem átti að taka ákvörðunina. Auðvitað er þetta bitamunur en ekki fjár en það breytir því ekki að eðlilegt er að ráðherrann sem ber ábyrgð á málinu taki ákvörðun á endanum. Það ættum við að gera miklu víðar í regluverkinu eins og það blasir við okkur, ekki bara í þessu heldur mörgu öðru, þar sem ráðherra hvers tíma hafa verið gjarnir á því að fela öðrum, einhverjum ókjörnum hópum úti í bæ, ábyrgðina á ákvörðunum og skýla sér síðan á bak við það að þeir hafi bara fengið þetta svona til sín og staðfest það. Ég held að þessi breyting sé til bóta þó að hún breyti engu um efnislega niðurstöðu málsins, að því skoðuðu að ráðherrann skal taka þessar ákvarðanir að fengnu mati orkumálastjóra.
Ég vona að við komumst af stað hvað aukna græna orkuframleiðslu varðar ekki seinna en strax. Þá vitna ég í ágæt orð fyrrverandi þingmanns Miðflokksins sem sagði að strax væri teygjanlegt hugtak. Í samhengi orkuframleiðslu þá tekur strax tíma og í því samhengi segi ég auðvitað að þó við tækjum allar þær djörfustu ákvarðanir sem í boði eru í dag til að leysa þetta vandamál þá tekur það töluverðan tíma að koma málum til betri vegar. Við megum lítinn tíma missa. Það skiptir í sjálfu sér ekki öllu máli hvort það eru einhverjar vikur til eða frá en í öllu falli þarf að taka afgerandi ákvarðanir í þessum efnum fljótt á nýju ári. Ég held að við ættum að einsetja okkur það að vera strax byrjuð á að ræða þetta í sameiningu hér í þinginu í ljósi þess hversu mikill stuðningur hefur komið fram hér við að taka til hendinni þrátt fyrir þá stöðu að Vinstrihreyfingin – grænt framboð sem situr í forsæti ríkisstjórnarinnar virðist hafa fullkomið neitunarvald gagnvart hinum tveimur stjórnarflokkunum, Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki. Það verður einfaldlega að losa um þann hnút svo að samfélagið hljóti ekki enn meiri skaða af en nú er að verða. Það er ekki bara að hér sé verið að forða því að ljósin slokkni í stofum landsmanna, það er auðvitað þannig að fyrirtæki fá ekki svigrúm til að vaxa og dafna. Það liggur jafnvel fyrir að fyrirtæki sem hafa verið með samninga sem eru ekki samningar um skerðanlega raforku, eru ekki að fá framlengingu á þeim sem fyrirtækin höfðu væntingar um á því ári sem nú er að klárast. Það skýtur skökku við í því samhengi að Landsvirkjun sagði fyrir nokkrum mánuðum síðan að fyrirtækið treysti sér til að standa með núverandi kúnnum sínum, þegar það undarlega útspil kom innan úr Orkustofnun að stofnunin taldi sig einhvern veginn þess umkomna að móta nýja atvinnustefnu fyrir Ísland þar sem öll ný raforka ætti að fara í orkuskipti. Raforka þarf auðvitað að fara í það að byggja upp og styðja við atvinnulífið í landinu. Öðruvísi verður okkur ekkert ágengt í að styrkja og efla þau velferðarkerfi sem okkur þykja mestu skipta.
En ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra núna, nóg er nú samt. Það væri hægt að tala hér í allan dag og þá færu ýmsir á flug sem gætu sett þinglok úr skorðum. En ég bara ítreka það undir lokin að mér finnst þetta hreinlega alveg agalegt mál sem er hér til meðferðar. Sú staða sem uppi er á fullri ábyrgð þeirra ríkisstjórnarflokka sem nú hafa setið í á sjöunda ár og þetta er staðan. Á sjöunda ár. Það er þyngra en tárum taki að við séum í þessari stöðu núna sem þjóð. Ég vona að þær aðgerðir sem hér er gripið til og lögfestar með því frumvarpi sem hér liggur fyrir verði eins skammvinnar og mögulegt er. En ég óttast að það verði erfitt að komast út úr þessari stöðu á meðan ríkisstjórnin situr og er mönnuð með óbreyttum hætti. — Ég læt þetta duga í bili.