raforkulög.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir ágæta ræðu. Ég hjó eftir því að í upphafi talaði hann um — og ástæðan fyrir að ég spyr er sú að hv. þingmaður og hans flokkur eru ekki með fulltrúa í atvinnuveganefnd þannig að ég hef bara ekki haft tækifæri til að ræða þessi mál við þá. En hv. þingmaður sagði hér í upphafi að hér væri um að ræða mál sem fæli í sér skerðingu. Það er kannski ákveðin ónákvæmni vegna þess að hér er um að ræða mál sem felur í sér hvernig haga skuli málum ef til skerðingar kemur vegna þess að það verður eitthvað ófyrirséð, hvort sem það er af náttúrulegum ástæðum eða að sú kyrrstaða sem verið hefur í þessum málum undanfarin ár komi endanlega og bíti í afturendann á okkur, eins og nú eru vísbendingar um að hafi gert, þ.e. það er ekki nóg með að kerfið sé uppselt og eftirspurn töluvert meiri en framboð heldur eru vísbendingar um að þar sé farið að smitast á milli markaða. Það er verið að sækjast í og jafnvel verið að selja orku til stórnotenda til atvinnuuppbyggingar í hin ýmsu nýsköpunarverkefni og svona mætti lengi telja, mikilvæg verkefni, með því að ganga á þann hluta orkunnar sem hefur verið samstaða um að fari til heimila þó svo að lagarammann vanti. Það er eiginlega það sem þessu máli, jafn meingallað og það er, er ætlað að tryggja. Sú skylda sem hvílir á okkur er býsna rík eins og ég fór yfir í ræðu minni hér í dag. Hún er bókstaflega til staðar, sú skylda stjórnvalda að tryggja heimilum þessa orku. Þannig að ég er svona að velta fyrir mér, ef ég má spyrja hv. þingmann um afstöðu hans til þessa máls, hvort hann hafi einhverjar aðrar lausnir frekar ef þessi tiltekna útfærsla er ekki eitthvað sem þingmaðurinn myndi styðja við þær aðstæður sem við búum við. (Forseti hringir.) Við getum síðan tekið langt samtal um skoðanir okkar á því (Forseti hringir.) að við skulum vera komin í þessar aðstæður.
(Forseti (ÁsF): Ég minni þingmenn á ræðutímann.)