154. löggjafarþing — 51. fundur,  15. des. 2023.

raforkulög.

541. mál
[17:09]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það er auðvitað alveg hárrétt að við erum svolítið föst í þessari stöðu núna vegna þess hvernig mál hafa þróast. En við erum aftur kannski komin að því líka að það þarf að tryggja hag heimilanna. Það getur þýtt að stórnotendur verði að einhverju leyti skertir, komi til þessara aðstæðna sem ég held að við sameinumst öll um hér, eins ólíka skoðun og við höfum á stöðu mála og af hverju þetta er svona og hvernig hefði átt að komast fram hjá þessu o.s.frv. — við erum öll sammála um að við viljum trúa því að þetta gerist ekki. Ég er ekki sérstaklega vongóð samt sem áður. En það er líka þetta, þessi breytingartillaga sem síðan kemur inn — af því að hv. þingmaður talar um atvinnulífið og þá notendur sem eru með samninga og það þarf að virða, að þá er þarna í breytingartillögu við þetta mál, sem ég hef gert athugasemdir við, eiginlega verið að tryggja það varðandi minni vinnslufyrirtæki sem hafa verið með helminginn af heimilamarkaðnum, að komi til skerðingar þá fái þau raunverulega frítt spil til að selja meira til stórnotenda á meðan Landsvirkjun, sem er með hinn helminginn, er komin með minni heimildir. Eins og það sé ekki nóg samt í óreiðunni á þessum markaði þá er bara með þessu ákvæði hér, til viðbótar við að tryggja hag heimila, verið að skekkja myndina enn frekar.

Ég hef svo sem ekki beinlínis spurningu til hv. þingmanns um þetta. Hann situr ekki í nefndinni og ber ekki ábyrgð á þessu kraðaki, en kannski bara þetta: Mig langar að vita — vegna þess að þetta eykur náttúrlega enn frekar þörfina á því að við komum þessum málum í lag. Ég verð að segja líka að ég er ekki sérlega vongóð um að við stöndum hér að ári liðnu þegar þetta fellur út og segjum: Nú er það bara búið og nú getum við fellt þetta úr gildi og við stóðum okkur í stykkinu. Ég óttast að það sé bara alls ekki reyndin og sé reyndar engin teikn á lofti um það. Þetta er orkuframleiðslan eins og hv. þingmaður kom inn á, en þetta snýst líka um það (Forseti hringir.) að koma skikki á raforkulögin og markaðinn. Það mál hefur líka verið fast í vinnslu í ráðuneytinu. (Forseti hringir.) Telur hv. þingmaður líkur á að það mál komi til framkvæmda núna á vormánuðum?

(Forseti (ÁsF): Ég minni þingmenn á ræðutímann.)