154. löggjafarþing — 51. fundur,  15. des. 2023.

raforkulög.

541. mál
[17:12]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka andsvarið. Því er til að svara að ég hef litla trú á því að nein frumvörp sem verða raunverulega til gagns komi fram á komandi þingi í þessum efnum. Ég held að ríkisstjórnin sé ekki fær um að taka skynsamlegar og afgerandi ákvarðanir í þeim efnum. Varðandi þessa breytingu sem var gerð varðandi hlutfallsábyrgðina, ef við köllum það það — eins og hv. þingmaður kom inn á þá sit ég ekki í nefndinni, en um það sem kemur í ljós í nefndarálitinu get ég bara sagt að mér þykir þetta undarleg ráðstöfun. Ég heyrði auðvitað ekki rökræður inni í nefndinni sem eru þar undirliggjandi en mér þykir þetta undarlegt.

Varðandi það atriði sem hv. þingmaður nefnir, að það séu litlar líkur á að við verðum hér að ári liðnu í annarri stöðu en þeirri að þurfa að framlengja þetta, þá held ég að hæstv. ríkisstjórn myndi gera margt óskynsamlegra en að stíga hér einhvers lags regndans næstu mánuði og næsta haust í von um að um að vatnsstaða lóna verði betri en verið hefur. Ég treysti mér næstum til að segja að ég muni stíga slíkan regndans fyrir framan pontuna að ári liðnu ef ekki verður þörf á framlengingu þessa máls. (Gripið fram í.)