raforkulög.
Virðulegur forseti. Ég tel að með þeim breytingum sem atvinnuveganefnd leggur til á 1. efnismálsgrein 1. gr. þessa frumvarps verði ákvæðið líklega með öllu óframkvæmanlegt. Við erum að tala um meira en heila Hvammsvirkjun sem Landsvirkjun á allt í einu að geta tryggt almennum notendum til viðbótar við það sem Landsvirkjun selur inn á heildsölumarkaðinn nú þegar. Það hefur ekkert mat farið fram á áhrifum þessarar breytingar á vettvangi atvinnuveganefndar en það litla sem þó hefur komið fram bendir til að leiðin sé annaðhvort ófær eða muni valda orkufyrirtæki okkar, Landsvirkjun, tjóni, skapa óhagræði í orkukerfinu og jafnvel ýta undir að gerðir séu samningar um skerðanlega orku við fyrirtæki í rafmyntagreftri.
Við í Samfylkingunni munum greiða atkvæði gegn þessari grundvallarbreytingu en að öðru leyti munum við sitja hjá við afgreiðslu þessa máls. Að öðru leyti styðjum við að sjálfsögðu að (Forseti hringir.) gripið sé til þeirra aðgerða sem stefnt er að með framlagningu frumvarpsins. En með þeim breytingum (Forseti hringir.) sem hafa orðið á málinu hér á vettvangi þingsins er í raun búið að vinna gegn því markmiði, að við teljum.