raforkulög.
Virðulegur forseti. Þetta frumvarp er afrakstur árangurs undanfarinna ríkisstjórna og núverandi ríkisstjórnar í orkumálum. Það segir í nefndaráliti frá atvinnuveganefnd:
„Í ljósi mikillar eftirspurnar er því brýnt með vísan til almannahagsmuna að tryggja raforkuöryggi heimila og minni fyrirtækja og koma þannig í veg fyrir að fyrirsjáanlegur markaðsbrestur valdi heimilum og minni fyrirtækjum skaða.“
Við erum sem sagt komin þangað að minni fyrirtæki og heimili geta orðið fyrir skaða. Það segir líka í nefndarálitinu:
„Í umsögnum um frumvarpið er bent á að inngrip í raforkumarkaðinn, sem frumvarpið mælir fyrir um, sé m.a. afleiðing þess að ekki sé virkur samkeppnismarkaður og að verðmyndun sé ógagnsæ og ófyrirsjáanleg.“
Hvernig má það vera? Við erum búin að innleiða hérna svo tugum skiptir tilskipanir frá Evrópusambandinu þar sem á að koma á virkum samkeppnismarkaði. Hvernig stendur á því að það er ekki einu sinni virkur samkeppnismarkaður með öllu þessu regluflóði frá Brussel? Er ekki kominn tími til þess að við förum að setja okkar eigin reglur, fyrir íslenska hagsmuni miðað við eyju í Norður-Atlantshafi, einangraða eyju langt norður í Atlantshafi, og hætta þessu Brussel-rugli?