raforkulög.
Herra forseti. Við greiðum hér atkvæði um varnagla sem Brussel-ruglið leyfir okkur að setja við þá staðreynd að hér ríkir orkuskortur. Við getum, vegna neytendaverndar frá Evrópusambandinu, tryggt hag heimila í þeim aðstæðum. Við getum öll haft skoðun á því af hverju við erum í þessum aðstæðum. Það verður rætt síðar. Við getum líka haft skoðun á því hvernig við komum okkur út úr þeim aðstæðum. Það verður rætt síðar og vonandi verður eitthvað gert í því annað en að ræða það bara. En núna ber okkur skylda til þess að horfa raunsætt á stöðuna og grípa til aðgerða sem tryggja hag heimila komi til skerðinga, ekki bara vegna þess að það er lítil vatnsstaða heldur vegna þess að hér hefur ríkt kyrrstaða í orkuframleiðslu í málum þjóðarinnar. Það getur flætt á milli heimila annars vegar og stórnotenda hins vegar af því að lagaramminn eins og hann er í dag kemur ekki í veg fyrir það. Í meðförum atvinnuveganefndar urðu því miður neikvæðar breytingar sem ég setti skriflegan fyrirvara við í nefndarálitinu. Ég get ekki samþykkt þá breytingu (Forseti hringir.) í ljósi þess að við höfum ekki haft tíma til að fá úr því skorið hvað hún raunverulega þýðir. En þingflokkur Viðreisnar styður þetta mál, styður (Forseti hringir.) að það sé tryggt að heimili landsins beri ekki skarðan hlut frá borði í þessum aðstæðum.