raforkulög.
Virðulegur forseti. Það er auðvitað með ólíkindum að við séum hér að vinna að afgreiðslu máls um skömmtunarstjóra rafmagns á Íslandi. Ég held að þetta mál sé, eins og svo oft vill verða, sama marki brennt og önnur mál ríkisstjórnarinnar, það er ekki ráðist að rót vandans. Nú liggur fyrir meiri hluti, jafnvel aukinn meiri hluti, í þinginu fyrir því að ganga hratt og vel til aukinnar framleiðslu á grænni orku. Ég bara skora á ríkisstjórnarflokkana að koma málum þannig fyrir að þetta, að því er virðist, neitunarvald Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs gagnvart aukinni orkuframleiðslu verði afnumið og þegin verði sú hjálparhönd sem stjórnarandstöðuflokkar hafa rétt til stjórnarflokkanna sem a.m.k. segjast vilja stuðla að aukinni grænni orkuframleiðslu. Þingflokkur Miðflokksins mun sitja hjá við atkvæðagreiðslu en við styðjum auðvitað — og það er ekki annað í stöðunni, því miður, en að styðja markmið þessa máls sem snúa að því að tryggja að ljósin kvikni í stofum landsmanna á nýju ári.