154. löggjafarþing — 51. fundur,  15. des. 2023.

raforkulög.

541. mál
[17:36]
Horfa

Óli Björn Kárason (S):

Herra forseti. Þó að ég sé á rauðum takka þá er ég ekki að taka efnislega afstöðu til þessarar breytingartillögu að öðru leyti en því að ég vil bara minna á að hér er um bráðabirgðaákvæði að ræða og því er þessi breytingartillaga ekki góð og ég held að menn ættu ekki að leggja henni lið, því miður. En ég hvet hv. þingmann, eins og ég hef gert í samtölum, að útbúa sjálfstætt þingmál, frumvarp eða þingsályktunartillögu þessa efnis, og koma því á framfæri í þingsal þegar við fyrsta tækifæri.