154. löggjafarþing — 51. fundur,  15. des. 2023.

kílómetragjald vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða.

507. mál
[22:13]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Virðulegur forseti. Það er skiljanlegt að það sé vilji til þess hjá ríkinu að fá eitthvert fjármagn í staðinn fyrir það fjármagn sem hefur tapast við það að fólk fari að nota rafmagns- og tengiltvinnbíla. En það sorglega við þetta frumvarp er það að ef teknar eru þær tölur sem ráðuneytið sjálft kynnti í nefndinni, ef teknir eru sambærilegir bílar og einhver meðalkeyrsla, annars vegar bensínbíll og hins vegar rafmagnsbíll, þá reiknaði ráðuneytið út að það væri 190.000 kr. ódýrara að vera á rafmagnsbíl heldur en bensínbíl. En það sem ráðuneytið gleymdi í þessum útreikningi sínum er að rafmagnsbílarnir eru mun dýrari heldur en bensínbílarnir. Sá verðmunur getur verið umtalsverður og nú vitum við ekki hvort það verður almennilega hægt að fá einhverja niðurgreiðslu á því, en ef við gefum okkur t.d. að aukakostnaðurinn við rafmagnsbíl sé um 1 milljón umfram bensínbílinn, og gefum okkur að við ætlum að eiga þennan bíl í fimm ár, þá er neikvæður hvati til þess að fara á rafmagnsbíl. Ég veit það bara af eigin reynslu og barnanna minna sem skiptu öll yfir í rafmagnsbíla af því að það var mun ódýrara heldur en að keyra bensínbíl. Nú þurfa þau að endurhugsa þær ákvarðanir vegna þess að sá sparnaður sem var við það að fara á rafmagnsbíl er ekki lengur til staðar. 70% af nýjum bílum á síðustu árum hafa verið rafmagnsbílar og hættan er sú að það muni hrapa stórlega, einfaldlega vegna þess að nú er kominn neikvæður hvati. Með öðrum orðum er orðið dýrara að kaupa, eiga og reka rafmagnsbíl heldur en bensínbíl.