154. löggjafarþing — 51. fundur,  15. des. 2023.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2024.

2. mál
[22:16]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Teitur Björn Einarsson) (S):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2024, hér í 3. umræðu. Nefndin fjallaði um málið á milli 2. og 3. umræðu og fékk til sín gesti frá Bændasamtökum Íslands og matvælaráðuneyti. Í nefndaráliti er rakið hvernig því máli var stillt upp. Niðurstaðan er sú sem fram kemur í nefndarálitinu, að meiri hlutinn telur við þær aðstæður sem höfðu skapast að ákjósanlegt sé að breytingar sem þessar, hugsanlegar efnisbreytingar, séu lagðar fram við framlagningu frumvarpa en ekki sem breytingartillögur við 2. umræðu.

Herra forseti. Það sem ég vil fyrst og fremst gera grein fyrir í þessu nefndaráliti er breytingartillaga sem meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar leggur fyrir er varðar breytingar á 28. gr. laga um úrvinnslugjald. Þannig er mál með vexti að fjármála- og efnahagsráðuneytið og Skatturinn vöktu athygli nefndarinnar á því að þær breytingar sem eru lagðar til í 28. gr. á viðauka XVI við lög um úrvinnslugjald tækju ekki mið af breytingum sem hafa orðið á tollskrá með auglýsingu um breytingu á tollskrá. Tilvísun til þess hversu oft hver fjárhæð tæki breytingum í viðaukanum væri því ekki í samræmi við tollskrána. Því er það þannig í þessu máli, herra forseti, að meiri hlutinn leggur til breytingu þess efnis að í stað þess að tiltaka nákvæman fjölda þeirra tilvika sem krónutalan tekur breytingum verði stuðst við orðalagið „hvarvetna í viðaukanum“.

Í þessu felst engin efnisleg breyting, herra forseti, og leggur meiri hlutinn til að þessi breyting verði samþykkt. Undir þetta álit rita, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn Ágúst Bjarni Garðarsson, Stefán Vagn Stefánsson, Steinunn Þóra Árnadóttir og Vilhjálmur Árnason.