154. löggjafarþing — 51. fundur, 15. des. 2023.
kílómetragjald vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða.
507. mál
Herra forseti. Jafnvel þó að Samfylkingin sé sammála því að það þurfi að breyta tekjustofnum sem liggja til grundvallar ökutækjanotkun þá gagnrýnum við að útfærsla kerfisbreytinganna hefur ekki fengið nægilegan tíma í þingnefndinni. Auk þess liggur ekki fyrir mat á áhrifum á orkuskipti eða mat byggt á hugmyndum um réttlát græn umskipti. Þess vegna getur Samfylkingin ekki stutt málið.