154. löggjafarþing — 51. fundur,  15. des. 2023.

kílómetragjald vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða.

507. mál
[22:38]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Það hefur legið fyrir lengi að það væri nauðsynlegt að breyta nálgun á gjaldtöku af akstri og ökutækjum. Vandamálið er að ríkisstjórnin, þrátt fyrir allan sinn tíma við völd, hefur ekki farið í heildstæða skoðun sem nauðsynleg er í þessum efnum. Við í þingflokki Miðflokksins höfum áhyggjur af því að hér verði bara hrein viðbót við það sem fyrir er í mjög gjaldteknum skattstofnum sem eru akstur, ökutæki og umferð þannig að við munum greiða atkvæði gegn þessu frumvarpi eins og það liggur fyrir. Við hvetjum ríkisstjórnina til þess að fara í raunverulega heildstæða skoðun því að það sem blasir við okkur núna er allt gamla gjaldakerfið, það sem við bætist hér ofan á og síðan höfum við þrístökk samgönguráðherra þar sem á að bæta við nýrri gjaldtöku; tafagjöldum vegna samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, nýjum gjöldum á öll jarðgöng, gömul og til framtíðar, og síðan allar þær framkvæmdir sem liggja undir í lögum um samgöngusamstarfsverkefni. Þannig að við gjöldum varhuga við því að bæta við hreinni gjaldtöku (Forseti hringir.) með þessum hætti og hvetjum stjórnvöld til þess að fara í raunverulega heildstæða skoðun sem svo sannarlega veitir ekki af.