154. löggjafarþing — 51. fundur,  15. des. 2023.

kílómetragjald vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða.

507. mál
[22:43]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Eins og hefur komið fram hjá öðrum sem hafa tekið til máls um atkvæðagreiðsluna þá er hér um vanhugsað frumvarp að ræða sem ekki er búið að hugsa til enda hvaða áhrif hefur. Það er mjög líklegt að þetta frumvarp muni hafa mjög neikvæð áhrif á orkuskipti, að sá fjöldi fólks sem ákveður að fara í rafbíla muni hrapa stórlega enda kostnaðurinn stóraukinn. Það er því eins og þarna hafi verið farið í að finna leið til að ná í smá pening sem hægt væri að nota á móti einhverju öðru því eins og með margt annað, mörg önnur kílómetragjöld, er þessi peningur ekki eyrnamerktur því að bæta samgöngur heldur mun þetta eflaust allt renna í ríkissjóð, kannski til þess að hafa fleiri ráðuneyti.