154. löggjafarþing — 51. fundur,  15. des. 2023.

kílómetragjald vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða.

507. mál
[22:44]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Það er síðla kvölds og einhverjir kannski ekki alveg með á nótunum að lesa milli línanna, en hingað hafa tveir hv. þingmenn Viðreisnar komið upp og lýst afstöðu sinni til málsins. Ég vildi bara að vera skýr á því að ég tek undir lýsingar þeirra á málinu, vinnubrögðum og hvernig það hefði mátt búa betur um hnútana til að ná markmiðum og svo það að illa ígrundaðar álögur til viðbótar á heimili landsins og fyrirtæki eru kannski ekki tímabærar akkúrat núna þegar ávinningurinn er jafn óljós og raun ber vitni. Þingflokkur Viðreisnar getur því ekki stutt þetta mál.