kílómetragjald vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða.
Herra forseti. Það frumvarp sem við erum að greiða atkvæði um er fyrsti liðurinn, fyrsti hlutinn af stærri kerfisbreytingu um breytt gjaldtökufyrirkomulag vegna umferðar á vegum landsins. Seinni hlutinn er væntanlegur á næsta ári þar sem allar aðrar bifreiðar verði teknar inn í svokallað kílómetragjald, sem er það sem við erum að greiða atkvæði um í þessu máli um hreinorkubifreiðar. Það er ljóst í meðförum nefndarinnar að það er samstaða um það meginmarkmið sem stefnt er að með frumvarpinu, að þeir greiði sem nota. Þetta frumvarp nær að mínu mati vel utan um það markmið. Útfærslan er í sjálfu sér einföld en með svona kerfisbreytingu er skiljanlegt að menn vilji vanda sig og hugsa um hvernig gengur. En það er rétti tíminn að gera það núna. Á næsta ári mun þessi tiltölulega einfalda kerfisbreyting ganga í gegn. (Forseti hringir.) Ég held að það sé atriði til að hafa í huga að það mun reyna miklu frekar á hina síðari kerfisbreytingu og þar er gott að hafa í huga þann lærdóm sem við drögum af þessari vinnu sem þegar hefur verið unnin.