154. löggjafarþing — 51. fundur,  15. des. 2023.

kílómetragjald vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða.

507. mál
[22:49]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Það er ágætt að hafa pappírana fyrir framan sig svo maður geri sér grein fyrir því hvað maður er að gera að kvöldi dags. En þarna er verið að leggja til að sett verði hámark á greiðslu af þessu gjaldi af því að það er auðvitað verulegur hópur fólks sem sækir vinnu á höfuðborgarsvæðinu og einfaldur útreikningur á því að keyra frá Selfossi í vinnu sýnir að það kostar 30.000 kr. á ári fyrir utan alla aðra keyrslu fólks við daglega umsýslu. Við í Viðreisn teljum eðlilegt að við förum með gjaldið að hámarki upp að 180.000 kr.