almannatryggingar.
Virðulegur forseti. Hér erum við að fara að greiða atkvæði um jólabónusinn, 66.381 kr. Ég er búinn að fá ótrúlegar fyrirspurnir um þetta mál frá öryrkjum og líka öldruðum öryrkjum sem eru að verða 67 ára á þessu ári. Ég verð að benda á það að ef þú ert fæddur 1. janúar á þessu ári færðu ekki neitt. Ef þú ert fæddur 31. desember færðu fullt. Ef þú ert fæddur um mitt sumar færðu hálft. Ef enginn sér hversu rangt þetta er og vitlaust þá er það alveg með ólíkindum að við skulum vera með svona kerfi. Síðan spyrja öryrkjarnir í örvæntingu sinni: Fáum við þetta fyrir jól? Er þetta að fara í gegn? Hvenær fer það í gegn? Og maður getur þá alla vega sagt að þeir muni fá þetta en því miður fær þessi eldri hópur þetta ekki. Við erum með breytingartillögu um að hann fái þetta líka og ég vona heitt og innilega að það verði samþykkt.