almannatryggingar.
Virðulegur forseti. Hér erum við að greiða atkvæði um að þessi 2.000 manna hópur verst settu eldri borgara og 1.000 manna hópur öryrkja sem eru greinilega að breytast úr öryrkjum, að áliti meiri hlutans, í fullheilbrigða eldri borgara og eru hættir að vera öryrkjar — ég skil ekki hvernig er hægt að koma svona fram við fólk. Ég held að það hljóti að vera einhvers konar heimsmet að við förum þannig með okkar elsta fólk. Gleymum því ekki líka, ég ætla að minna okkur eina ferðina enn á það, að inni í þessu er búsetuskerðingarfólkið sem fær 10% minna en lægsta ellilífeyri. Og þessi ríkisstjórn setti aftur á lög um krónu á móti krónu skerðingu. Allir lofuðu fyrir síðustu kosningar að taka krónu á móti krónu skerðingar í burtu en þessi ríkisstjórn toppaði sjálfa sig og setti þær á aftur á bara þennan hóp, verst setta hópinn. — Þeir segja svo nei við þessu.