almannatryggingar.
Herra forseti. Ég hef litlu við það að bæta sem hv. þm. Guðmundur Ingi Kristinsson tjáði okkur hér á undan, nema bara þessu: Það verður aldrei sagt að Flokkur fólksins hafi ekki gefið ykkur tækifæri á því að sýna mennsku og hjartagæsku. Það verður aldrei sagt að þið hafið ekki haft tækifæri til þess að skipta um skoðun. Það hefur venjulega verið talið stórmannlegt að geta skipt um skoðun, sérstaklega þegar er verið að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur, langsárafátækustu almannatryggingaþega sem Ísland á í dag. Því er virkilega athyglisvert að sjá innræti þessarar ríkisstjórnar. Hún hugnast mér ekki og hefur ekki gert það alveg frá upphafi, ég verð að viðurkenna það. Mér finnst hún eiginlega fyrirlitleg miðað við það sem ég sé á þessari töflu. Þið ættuð að skammast ykkar.