almennar íbúðir og húsnæðismál.
Herra forseti. Við í Samfylkingunni styðjum þetta mál líkt og við styðjum þær aðgerðir sem hafa farið í gegnum Alþingi, síðast í gær í gegnum bandorminn sem fór í gegnum efnahags- og viðskiptanefnd sem ég sit í. En auðvitað er það þannig, forseti, að Grindvíkingar hafa búið við ástand sem er svo ótrúlegt í raun og veru og erfitt fyrir fólk að setja sig í spor þeirra þó að við getum öll rétt ímyndað okkur hvernig það er að þurfa að yfirgefa heimili sitt, allar sínar eigur, vegna þess hreinlega að jörðin er að opnast undir bænum.
Við fórum þarna, nokkrir þingmenn, á dögunum og keyrðum með björgunarsveitarmönnum um bæinn og það er ólýsanlegt að sjá hvernig kraftar jarðar hafa farið með bæinn. Auðvitað eru þarna eigur, hús og innviðir sem eru óskemmd en það er mjög margt sem hefur þarna farið úr lagi og Grindvíkingar komast ekki heim fyrir jól. Við verðum að gera allt sem við getum hér, löggjafinn, til að sjá til þess að þetta ástand verði sem bærilegast fyrir Grindvíkinga og eitt skref í því er þetta frumvarp sem við erum að ræða hér. Ég ætla ekki að lengja þessa umræðu, forseti. Ég fagna því bara hversu einhuga þingheimur hefur verið um að gera allt sem hægt er í þessum aðstæðum.