154. löggjafarþing — 52. fundur,  16. des. 2023.

viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.

543. mál
[10:19]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Orri Páll Jóhannsson) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar fyrir nefndaráliti í 543. máli, viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.

Með frumvarpinu er lagt til að kaflar og ákvæði laga um loftslagsmál sem fjalla um viðskiptakerfi ESB um losunarheimildir, svokallaða ETS-kerfi, verði færð inn í ný heildarlög. Þá er lagt til að innleiddar verði þrjár EES-gerðir á sviði loftslagsmála, sem fela í sér breytingar á ETS kerfinu. Evrópusambandið kom árið 2005 á fót viðskiptakerfi með losunarheimildir vegna gróðurhúsalofttegunda. Eins og rakið er í greinargerð með frumvarpinu er grunnhugmynd kerfisins að losun gróðurhúsalofttegunda frá tiltekinni starfsemi á EES-svæðinu sé háð gjaldi sem skapi aukna hvata til samdráttar í losun, orkusparnaðar og orkuskipta. Hugsunin er sú að greiða þurfi fyrir losun gróðurhúsalofttegunda frá starfsemi í anda mengunarbótareglunnar.

Við upptöku kerfisins fengu bæði stóriðja og flugrekendur úthlutað endurgjaldslaust ákveðnum fjölda losunarheimilda sem til stóð að fækka jafnt og þétt eftir því sem tímar liðu. Aðilar stæðu því frammi fyrir tveimur kostum, að draga úr losun eða kaupa losunarheimildir til að bæta upp fyrir losun sína. Kerfið myndi með því móti skapa hvata fyrir þá aðila sem féllu undir það til að leita leiða til að draga úr losun og komast þannig hjá því að þurfa að leggja út fjármuni til kaupa á losunarheimildum. Dregið hefur verið úr heildarfjölda losunarheimilda í ETS-kerfinu jafnt og þétt frá upphafi kerfisins. Breytingarnar nú fela í sé að dregið verður hraðar úr heildarfjölda losunarheimilda í ETS-kerfinu en áður var gert ráð fyrir til þess að tryggja samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda í samræmi við sett markmið.

Meiri hlutinn telur að með setningu sérlaga um ETS-kerfið sé fyrst og fremst verið að gera löggjöfina aðgengilegri og auka skýrleika laga sem varða kerfið.

Virðulegi forseti. Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Greint er frá því í nefndaráliti sem liggur frammi.

Nefndin fjallaði almennt um tekjur af þátttöku í ETS-kerfinu en þær eru samkvæmt frumvarpinu ekki markaðar til tiltekinna verkefna, heldur renna þær í ríkissjóð líkt og á við um aðrar tekjur ríkisins. Ljóst er að fjárveitingar til loftslagsmála eru ákveðnar í fjárlögum hverju sinni, og leggur meiri hlutinn áherslu á að mikilvægt sé að fjárlög styðji við markmið Íslands í loftslagsmálum.

Nefndin er upplýst um að vinna við uppfærslu aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum er hafin, en í þeirri vinnu er lögð áhersla á gagnsæi í ráðstöfun fjármagns og að valdar séu aðgerðir í aðgerðaáætlun Íslands sem skila sem mestum ávinningi í átt að loftslagsmarkmiðum. Þá hyggst ráðherranefnd um loftslagsmál skoða hvernig tekjum af sölu uppboðsheimilda í ETS-kerfinu sem renna í ríkissjóð verði varið í þágu þess að hraða orkuskiptum í samstarfi við atvinnulífið. Meiri hlutinn áréttar mikilvægi þess að framangreint verði skoðað af ráðherranefnd um loftslagsmál.

Virðulegi forseti. Líkt og fram hefur komið leiddu viðræður íslenskra stjórnvalda til samkomulags um aðlögun Íslands að ákvæðum tilskipana um flugsamgöngur. Hagsmunir Íslands í málinu sneru að því að jafna samkeppnisstöðu þeirra flugfélaga sem fljúga til og frá Íslandi og þeirra flugfélaga sem fljúga um aðra flugvelli innan Evrópska efnahagssvæðisins en flugleiðir til Íslands eru mun lengri en meðalflugvegalengd á milli annarra flugvalla innan Evrópu eins og við þekkjum.

Í þeim umsögnum sem bárust frá flugrekstraraðilum er áréttað mikilvægi þess að frumvarpið verði að lögum fyrir áramót. Í tengslum við þá aðlögun sem ég lýsti hér að ofan, var í umsögn Landverndar tekið fram að samtökin styðji að þeir sem menga þurfi að greiða fyrir og eru þeirrar skoðunar að allar losunarheimildir skuli vera á ábyrgð þess sem losar og að Ísland eigi ekki að skorast undan ábyrgð með undanþágu um að halda áfram að veita endurgjaldslausar losunarheimildir til flugrekenda lengur en aðrar þjóðir í Evrópu. Í umsögninni segir enn fremur að með aðlögun Íslands til þess að veita endurgjaldslausar losunarheimildir til flugrekenda af þeim losunarheimildum sem ríkið fær til uppboðs árin 2025 og 2026 sé ríkið að niðurgreiða notkun jarðefnaeldsneytis og brjóti með því gegn eigin yfirlýstri stefnu um að beita sér fyrir því að niðurgreiðslum á notkun jarðefnaeldsneytis verði hætt.

Meiri hlutinn telur rétt að taka fram að íslensk stjórnvöld sóttust eftir aðlögun fyrir Ísland vegna breytinga á tilskipuninni til að jafna ójafna samkeppnisstöðu íslenskra flugrekenda. Sú aðlögun sem samið var um tryggir samkeppnishæfni þeirra út árið 2026 og var talin nauðsynleg vegna landfræðilegrar legu Íslands og mikilvægi flugsamgangna fyrir þjóðarbúskapinn. Í minnisblaði umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins sem liggur fyrir nefndinni er einnig bent á að aðlögun fyrir Ísland um 100% endurgreiðslu vegna kaupa á sjálfbæru flugvélaeldsneyti á flugvöllum á Íslandi leiði til aukinnar eftirspurnar eftir slíku eldsneyti sem stuðlar að auknu framboði sem er tilgangur þessa ákvæðis í gerðinni.

Meiri hlutinn áréttar að framangreind aðlögun var bæði nauðsynleg og gríðarlega mikilvæg fyrir íslenska hagsmuni. Með aðlöguninni sé Ísland síður en svo að skorast undan ábyrgð og bendir á að ETS-kerfið er lykilbreyta hvað varðar að ná samdrætti í losun, en undir það taka Náttúruverndarsamtök Íslands í umsögn sinni við frumvarpið. Þá bendir meiri hlutinn á að um 40% losunar gróðurhúsalofttegunda á Íslandi fellur undir ETS-kerfið, eins og rakið er í greinargerð með frumvarpinu.

Þá fjallaði nefndin um svokölluð „ystu svæði“. Kom fram í umfjöllun málsins í nefndinni að íslensk útflutningsfyrirtæki, m.a. í stóriðju, séu háð því að flytja vörur sínar með flutningaskipum því aðrar leiðir standi ekki til boða. Það leiði til þess að samkeppnishæfni þeirra á alþjóðlegum mörkuðum minnki en töluverður kostnaður fylgi því að koma vörum á áfangastað erlendis, sem eingöngu sé hægt sjóleiðina. PCC Bakki lagði til í umsögn sinni að undanþáguheimild tilskipunar sem varðar sjóflutninga verði spegluð í frumvarpinu sem við ræðum hér, að teknu tilliti til landfræðilegra aðstæðna og takmarkaðra flutningsmöguleika. Ráðherra verði því heimilt að skilgreina ystu svæði hér á landi með reglugerð og þannig verði unnt að innleiða sambærilega undanþágu og gildir t.d. fyrir Kanaríeyjar sem nú þegar njóta undanþágu þar sem ekki þarf að standa skil á losunarheimildum til ársloka 2030 vegna skipaflutninga frá Kanaríeyjum til Valencia á Spáni.

Í minnisblaði ráðuneytisins til nefndarinnar var á það bent að undaþáguheimild tilskipunarinnar er bundin við siglingar milli hafnar í ysta svæði aðildarríkis og til hafnar sem er staðsett í sama aðildarríki, sem og sjóferðir milli hafna innan ysta svæðis og sjóferðir milli hafna á ystu svæðum í sama aðildarríki. Auk þess kom fram að íslensk stjórnvöld sóttust eftir sérlausn í viðræðum um aðlögun fyrir Ísland vegna breytinga á reglum í flugi, á þeim grunni að Ísland ætti margt sameiginlegt með ystu svæðum. Evrópusambandið hafnaði þeim málatilbúnaði með þeim rökum að efnahagsleg staða Íslands og svæða sem teljast til ystu svæða væri ekki sambærileg. Siglingaleiðir í gámaflutningum og hrávöru væru auk þess almennt frekar langar og siglingaleiðir til Íslands væru ekki teljandi lengri í samanburði við margar siglingaleiðir gámaskipa innan Evrópu.

Þar sem efnisleg rök skorti var talið því sem næst útilokað að ESB myndi veita Íslandi undanþágu á þessum grunni hvað varðaði sjóflutninga. Flutningskostnaður dreifðist auk þess á fleiri einingar og milliliði í sjóflutningum og hefði því ekki sömu eftirspurnaráhrif og vegna millilandaflugs þar sem flugmiðar væru seldir beint til neytenda. Enn fremur kemur fram í minnisblaði ráðuneytisins að viðræðum við Evrópusambandið um aðlaganir við upptöku tilskipunar ESB 2023/959 hafi lokið í lok september á þessu ári. Íslensk stjórnvöld sóttust ekki eftir aðlögun við upptöku ETS-kerfisins í sjóflutningum á grundvelli þeirra raka að ESB hefði hafnað því að Ísland gæti fallið undir sömu reglur og ystu svæði ESB í flugmálinu, þ.e. flughluta gerðanna.

Meiri hlutinn telur ljóst að verði tekin ákvörðun um að innleiða sams konar reglu í íslensk lög og gildir fyrir ystu svæði samkvæmt 3-b mgr. 12. gr. án samþykkis ESB væri það brot á EES-samningnum.

Virðulegi forseti. Nefndin fjallaði einnig um þvingunarúrræði og viðurlög en í umsögnum sem bárust nefndinni kom fram nokkur gagnrýni á ákvæði frumvarpsins sem fela í sér þvingunarúrræði og viðurlög. Meiri hlutinn bendir á að þau ákvæði eru tekin óbreytt upp úr gildandi lögum um loftslagsmál og hafa verið í gildi í um tíu ár. Einungis eru lagðar til breytingar á ákvæðum varðandi sjóflutninga. Telur meiri hlutinn ekki forsendur til þess að leggja til breytingar á framangreindum ákvæðum.

Þar að auki fjallaði nefndin um nauðsyn þess að leiðbeiningar stjórnvalda til fyrirtækja séu skýrar sem og hlutverk Umhverfisstofnunar við meðferð málsins sem lögbærs stjórnvalds hvað varðar ETS-kerfið. Stofnuninni ber að tryggja að þeir aðilar sem falla undir kerfið framfylgi þeim kröfum sem gerðar eru til þeirra og geri upp losunarheimildir í þeim tilfellum sem það á við. Í því hlutverki Umhverfisstofnunar felst m.a. upplýsingaskylda við þá aðila sem falla undir kerfið, leyfisveitingar, yfirferð gagna, svo sem vöktunaráætlana, losunarskýrslna og annarra skýrslna er varða ETS-kerfið, samvinna við aðrar hlutaðeigandi stofnanir og umsjón með íslenska hluta skráningarkerfisins sem landsstjórnandi. Meiri hlutinn áréttar mikilvægi þess að öll upplýsingagjöf og leiðbeiningar stjórnvalda til fyrirtækja um ETS-kerfið séu skýrar og aðgengilegar.

Virðulegi forseti. Meiri hlutinn leggur til breytingar á frumvarpinu sem hér verður stuttlega gerð grein fyrir. Til nánari skýringar vísast til ítarlegrar umfjöllunar í nefndaráliti sem liggur frammi. Í fyrsta lagi er lögð til breyting er varðar reglugerð um aðliggjandi gámaumfermingarhafnir. Í minnisblaði ráðuneytisins til nefndarinnar kemur fram að ráðuneytið telji rétt að gerð verði sú breyting á 4. gr. frumvarpsins að ráðherra verði gert skylt að setja reglugerð um aðliggjandi gámaumfermingarhafnir. Í minnisblaðinu kemur fram að auknum kostnaði við sjóflutninga, sem rýmkun ETS-tilskipunarinnar hefur í för með sér þannig að hún nái yfir sjóflutningastarfsemi, fylgir áhætta á sniðgöngu ef hnattræn markaðstengd ráðstöfun er ekki fyrir hendi.

Í öðru lagi er lögð til breyting er varðar innleiðingu EES-gerða, en við þinglega meðferð málsins voru þær gerðir sem vísað er til í 12.-14. tölulið 33. gr. frumvarpsins teknar upp í EES-samninginn, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar. Nefndin var upplýst um að meiri hluti utanríkismálanefndar samþykkti á fundi sínum 11. desember síðastliðinn að veita heimild til að aflétta stjórnskipulegum fyrirvara af ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar frá 8. desember síðastliðnum með lagafrumvarpi, í samræmi við reglur Alþingis um þinglega meðferð EES-mála. Vegna þessa telur meiri hlutinn rétt að leggja til breytingu og vísa til upptöku gerðanna í EES-samninginn.

Í þriðja lagi er lögð til sú breyting að við ákvæði frumvarpsins bætist ákvæði til bráðabirgða. Í því felst að ráðherra verði skylt að gefa Alþingi skýrslu um efnahagsleg áhrif ETS-kerfisins á Ísland. Þar skulu koma fram upplýsingar um viðræður við Evrópusambandið vegna aðlögunar gagnvart öllum breytingum á regluverki ESB með losunarheimildir og með hvaða hætti best verður tekið tillit til sérstöðu Íslands, m.a. vegna landfræðilegrar legu auk annarra þátta sem kunna að varða hagsmuni Íslands þegar aðlögun í flugi samkvæmt ákvæðum laganna lýkur.

Nánar er fjallað um efnislegar breytingartillögur meiri hlutans í nefndaráliti, en auk þeirra eru lagðar til tæknilegar breytingar sem þarfnast ekki skýringa.

Virðulegi forseti. Að framansögðu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir og lagðar eru til í sérstöku þingskjali.

Undir álit meiri hluta hv. umhverfis- og samgöngunefndar rita auk þess sem hér stendur hv. þingmenn Bjarni Jónsson, Halla Signý Kristjánsdóttir, Ingibjörg Isaksen, Njáll Trausti Friðbertsson, Vilhjálmur Árnason, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir og Þórunn Sveinbjarnardóttir með fyrirvara.

Að lokum vil ég þakka hv. umhverfis- og samgöngunefnd fyrir vinnuna við þetta mikilvæga mál, þeim gestum sem komu fyrir nefndina, að ólöstuðum sérfræðingum ráðuneytanna sem gerðu allt til þess að upplýsa okkur hratt og vel.