154. löggjafarþing — 52. fundur,  16. des. 2023.

viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.

543. mál
[10:34]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Það hvernig staðið hefur verið að vinnslu þessa máls hér á Alþingi er í sjálfu sér hneyksli og kom held ég megi segja öllum á óvart, sérstaklega í ljósi þess hversu stórt og vafasamt málið er. Ég segi vafasamt vegna þess að margir hæstv. ráðherrar höfðu varað við nokkrum þáttum þessa máls en þó sérstaklega því er varðar flug, en skyndilega birtist þetta hér í aðdraganda jóla og ákvörðun tekin um það af hálfu meiri hlutans, af hálfu ríkisstjórnarinnar, að það skyldi keyra þetta mál í gegn með hreint ótrúlegum hætti án eðlilegrar þinglegrar meðferðar.

Ég leyfi mér að segja það, frú forseti, að ekkert í meðferð þessa máls var eðlilegt í ljósi þess hvernig við teljum að þurfi að nálgast meðferð mála á Alþingi. Þetta gekk bara út á það að klára málið sem hraðast og klára það hvers vegna? Jú, klára það fyrir Evrópusambandið. Þetta mál er enn eitt dæmið um undirgefni þessarar ríkisstjórnar gagnvart Evrópusambandinu en e.t.v. hið versta, a.m.k. eitt hið versta, enda höfðu, eins og ég sagði áðan, ráðherrar í ríkisstjórninni útskýrt fyrir okkur úr þessum ræðustóli að málið væri stórhættulegt. Hæstv. núverandi fjármálaráðherra, þá utanríkisráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, hafði sagt að þetta væri erfiðasta málið sem Ísland hefði staðið frammi fyrir vegna þátttökunnar í EES-samningnum og það kæmi ekki til greina að samþykkja málið, a.m.k. ekki óbreytt. Þau orð vöktu athygli mína. Mér þótti ánægjulegt að heyra að það væru einhver merki um að þessi ríkisstjórn ætlaði loksins að standa í lappirnar gagnvart Evrópusambandinu en þessi viðbót, a.m.k. ekki óbreytt, olli mér áhyggjum eins og ég lýsti á sínum tíma ítrekað, því það sem ég óttaðist var að það væri ekki meiri alvara á bak við yfirlýsingar hæstv. ráðherra og annarra um að standa í lappirnar í þessu máli en svo að fundið yrði fyrsta tækifærið til að gera málamyndabreytingar og réttlæta þannig eftirgjöf í málinu, sem kom á daginn.

Frú forseti. Þér munið eflaust eftir því þegar mikla Evrópuhátíðin var haldin hér í bæ og Ursula von der Leyen, fulltrúi Evrópusambandsins, mætti til leiks og hitti strax á leiðinni af Reykjavíkurflugvelli hæstv. forsætisráðherra á fundi í ráðherrabústaðnum. Þar var tilkynnt eftir stuttan fund, tilkynnt á blaðamannafundi, að komin væri niðurstaða í þetta mál sem þessi ríkisstjórn hafði talið hið erfiðasta sem á fjörur okkar hefði rekið vegna þátttökunnar í EES-samstarfinu. Og hver var niðurstaðan? Hún var sú að Ísland fengi frest í tvö, þrjú ár til að aðlagast — nei, ekki til að aðlagast heldur til að búa sig undir þær hörmungar allar sem hæstv. ráðherrar voru búnir að lýsa hér ítrekað í fjölmiðlum. Við fengjum tveggja, þriggja ára gálgafrest. Þetta var okkur kynnt sem einhvers konar sigur í málinu en þegar spurt var út í raunverulegar afleiðingar af þessu sögulega samkomulagi hæstv. forsætisráðherra og Ursulu, til að skemma ekki gleðina á Evrópumannahátíðinni í Reykjavík, þá var fátt um svör. Enn hafa ekki fengist svör um það nákvæmlega hvað gerist eftir þennan frest en þó vonast menn til að á einhvern hátt verði þetta í lagi, að tíminn nýtist til að Ísland vinni einhverja sigra í viðræðum við Evrópusambandið.

Við sem þekkjum þessa ríkisstjórn og hvernig stjórnmálin hafa gengið fyrir sig hér á landi vitum auðvitað að þetta var bara brella, nákvæmlega eins og ég hafði óttast og haft orð á að yrði líklegasta niðurstaðan. Þetta var brella til að fresta vandanum fram yfir stjórnartíð þessarar ríkisstjórnar eins og á við í svo mörgum málum. Meginmarkmiðið hjá stjórninni er að ýta á undan sér vandanum, sama hversu stór hann er, ýta honum á undan sér þannig að einhverjir aðrir þurfi að fást við hann.

Nú er hún aldeilis búin að búa til vandamál fyrir framtíðina sem forstjórar flugfélaganna hafa lýst sem miklum hörmungum þótt sumir forsvarsmenn flugfélaganna telji rétt að samþykkja málið, trúandi því sem ráðherrar í ríkisstjórninni hafa sagt þeim um að þetta verði leyst í millitíðinni. Við vitum öll að þetta verður ekki leyst í millitíðinni. Við vitum að þegar búið er að gefa eftir gagnvart Evrópusambandinu þá þýðir ekkert að koma eftir tvö til þrjú ár og segja: Heyrðu, þetta er farið að valda okkur áhyggjum, að fresturinn okkar sé að líða, og eruð þið ekki til í að laga þetta? Nei, ef menn hafa það ekki í sér að semja á meðan við höfum samningsstöðu eða höfum réttinn til að verja okkar hagsmuni þá er ekki við því að búast að Evrópusambandið muni gefa neitt eftir síðar. Það er fráleitt. Það er fráleitt yfir höfuð að ráðherrum þessarar ríkisstjórnar detti í hug að almenningur eða forstjórar fyrirtækja trúi því að málið verði leyst í millitíðinni og Evrópusambandið muni allt í einu finna í hjarta sínu ástæðu til að taka tillit til íslenskra aðstæðna. Og hverjar eru íslenskar aðstæður? Jú, eins og ráðherrarnir sjálfir útskýrðu þá erum við Íslendingar búsettir á eyju. Þetta kann að hafa komið einhverjum bírókrötum hjá Evrópusambandinu á óvart en þau skilaboð voru þó send út og útskýrt að þessi áform Evrópusambandsins um nýjar álögur, ný gjöld á flug, myndu hafa sérstaklega óheppileg áhrif fyrir Íslendinga.

Það er kannski rétt að minna á það, frú forseti, fyrir þá sem koma nýir að málinu að þetta gengur út á, af hálfu Evrópusambandsins, að reyna að draga úr flugferðum, reyna að fá fólk til að fljúga minna og nýta þá frekar járnbrautarlestir eða einhverja aðra kosti í samgöngum, reiðhjól væntanlega, rafskútur og slíkt, alla vega að fólk hætti að fljúga eins mikið og raunin er. En þetta, fyrir vikið, kemur sérstaklega illa við okkur Íslendinga vegna þess að við förum ekki með járnbrautarlest til annarra landa. Við getum ekki ferðast til annarra landa nema með flugi — jú, eða kannski Norrænu eða öðrum skipum en almennt ferðast Íslendingar með flugi.

Fyrir vikið bitnar þetta á öllum almenningi á Íslandi og möguleikum okkar til að viðhalda þeirri tiltölulega nánu tengingu sem við höfum haft við umheiminn í krafti þess að á Íslandi er tengimiðstöð flugs á Norður-Atlantshafi. Það var hitt atriðið sem olli stjórnvöldum og mér miklum áhyggjum, það voru áhrif þessa máls á stöðu okkar sem tengimiðstöðvar á Atlantshafinu í flugi því að þessi áform lögðust alveg sérstaklega þungt á Ísland. Gerður var samanburður, það voru raunar rannsóknir á því og ég mun fara yfir þær hérna í seinni ræðum, það voru gerðar rannsóknir á því hversu mikil áhrif þetta myndi hafa á stöðu okkar sem tengimiðstöðvar á Atlantshafinu. Þau áhrif voru metin gífurleg. Þetta viðurkenndu ráðherrarnir á sínum tíma. Afleiðingin yrði sú að flug til og frá landinu yrði miklu dýrara, og það var svo sem bara tilgangurinn að gera flug dýrara, en einnig þau að samkeppnisstaða þeirra flugfélaga sem fljúga til og frá landinu og nota þetta sem tengimiðstöð myndi skerðast verulega. Fyrir vikið myndi flugferðum til og frá landinu fækka umtalsvert og áfangastöðum fækka verulega einnig. Þetta hefði áhrif á allt í hagkerfi landsins og raunar á samfélagið allt, þegar möguleikar okkar á að ferðast til og frá löndum minnkuðu þá teldu fyrirtæki síður eftirsóknarvert að starfa hér á Íslandi eða fjárfesta og lífsgæði landsmanna myndu skerðast með færri, takmarkaðri og dýrari flugferðum.

Nú segja þeir hæstv. ráðherrar og nefndarmenn sem fyrir þessu tala í umhverfis- og samgöngunefnd að þetta verði allt í lagi, vonandi, vegna þess að seinna, sem sagt eftir frestinn sem Ursula veitti Íslendingum í tvö, þrjú ár, verði hvort eð er farið að leggja hærri gjöld á aðra sem fljúga út fyrir loftrými EES-svæðisins eða Evrópusambandsins, að þetta verði allt í lagi af því að samkeppnisstaðan haldist nokkuð jöfn. Allir lendi í því að borga dýrari flugferðir. Eitt muni yfir alla ganga að því leyti að það verði dýrara að ferðast og færri muni þá treysta sér til þess eða hafa efni á því en það muni eiga við um hina líka, hvort sem þeir eru að fljúga frá Evrópu til Bandaríkjanna eða bara innan Evrópu. Við þetta er nú eitt og annað að athuga, frú forseti. Í fyrsta lagi er ekkert fast í hendi með þetta. Þetta er einhvers konar von, villuljós sem kveikt var til að reyna að fá menn til að afgreiða þetta mál og treysta á að ríkisstjórnin eða ráðherrar hennar yrðu komnir til annarra starfa þegar áhrifin kæmu fyllilega í ljós.

En svo er hitt sem er það að burt séð frá þessu þá standa eftir algerlega óhögguð — frú forseti, ég þakka hv. þm. Ingu Sæland fyrir að veita mér hvatningu hér og vonandi gerir hv. þingmaður sér grein fyrir því hversu mikilvægt mál þetta er — þau rök að Ísland, ólíkt flestum öðrum Evrópulöndum, þarf að reiða sig á flugferðir og tiltölulega langar flugferðir oft á tíðum, oftast, til að landsmenn geti komist til annarra landa. Það breytist ekkert. Að því leyti skerðist réttur og staða landsmanna á Íslandi samanborið við aðra, samanborið við t.d. Þjóðverja sem geta hoppað upp í lest og farið til einhverra sjö annarra landa, held ég að sé, með því að fara yfir landamæri Þýskalands, og svo um alla Evrópu. Þetta geta Íslendingar ekki. Við búum á eyju. Eins og ég nefndi hérna áðan þá voru þær upplýsingar sendar til Evrópusambandsins og það bárust einhver svör um að menn gerðu sér grein fyrir því en svo auðvitað eins og svo oft þá komu engar lausnir í samræmi við það.

Niðurstaðan er sú að hér erum við að fjalla um mál — og hér er ég bara, frú forseti, að tala um flugmálin. Ég á eftir í seinni ræðu að fjalla um siglinga- eða flutningamálið og ýmislegt fleira í þessum ótrúlega pakka 14 innleiðinga sem stendur til að troða í gegnum þingið með óforsvaranlegum hætti, en hvað flugmálið varðar þá stöndum við Íslendingar frammi fyrir því að það verður dýrara og miklu erfiðara fyrir landsmenn að ferðast til annarra landa, enda er leikurinn til þess gerður. Menn hafa stundum vikið sér undan því en ekki alltaf. Stundum hafa ráðherrar bara viðurkennt að þetta sé ætlað til þess að fólk sé ekki að þvælast svona mikið milli landa. Það er illa séð að almenningur sé að fara einhverjar óþarfaferðir til Kanaríeyja eða Kaupmannahafnar eða hvert sem er og þess vegna skal fólki refsað fyrir það, refsað fyrir að vera að þvælast eitthvað til annarra landa.

Hver er afleiðingin? Hver verður afleiðingin? Hver er tilætluð afleiðing? Hún er sú að tekjulægra fólk mun ekki lengur hafa efni á því að ferðast of mikið með flugi. Evrópusambandið leggur nú alveg sérstakt hatur á þessi svokölluðu lággjaldaflugfélög og telur þau til þess fallin að auka ferðalög, auka ferðalög fólks sem hefur ekki mikil fjárráð, þannig að markmiðið sem ríkisstjórn Íslands tekur undir með Evrópusambandinu og ætlar að samþykkja er að tekjulægra fólk ferðist minna. Þetta tengist auðvitað áformunum um að það verði dýrara og erfiðara að eiga og reka fjölskyldubíl. Markmiðið er í raun að færa samfélagið, eins og svo margt sem tengist þessari loftslagsstefnu Evrópusambandsins, áratugi aftur í tímann til þess tíma þegar einungis hinir tekjuhærri gátu leyft sér að ferðast til útlanda, einungis þeir tekjuhærri áttu eigin bifreið. Markmiðið er að sópa öllum upp í borgarlínuna og fólk geti þá ferðast hvert sem borgarlínan gengur en helst ekki meira en það.

Það sem er þó ekki síður áhyggjuefni við þetta mál er hversu ríkisstjórnin hefur sýnt af sér eindreginn vilja til að fórna hagsmunum landsins, til að lúffa, til að gefa eftir gagnvart Evrópusambandinu, því þetta var mál, frú forseti, þeirrar gerðar að ráðherrarnir meira að segja komu hér í ræðustól og sögðu: Þetta er erfiðasta mál sem við höfum staðið frammi fyrir og kemur ekki til greina að samþykkja þetta. Þetta nefndi ég hér í upphafi en ég nefndi líka að við höfðum þá þegar reynslu af eftirgefanleika þessarar ríkisstjórnar, undirgefni, leyfi ég mér að segja, gagnvart Evrópusambandinu. Fyrir vikið hefur ríkt ótti um að sú yrði raunin með þetta mál líka hvað sem leið digurbarkalegum yfirlýsingum hæstv. ráðherra, ekki hvað síst Sjálfstæðisflokksins. En enn og aftur komust þessir hæstv. ráðherrar að þeirri niðurstöðu á endanum að rétt væri að lúta í gras gagnvart ESB, fórna hagsmunum landsins, fórna hagsmunum alls almennings á Íslandi og fyrirtækja til ára og áratuga en samhliða því veita Evrópusambandinu aukið vald til að tukta íslenskan almenning til því að þetta opnar á þessi 14 mál sem á að troða hérna í gegn, þessar 14 gerðir, opnar á að Evrópusambandið geti í framhaldinu bara útfært þetta að vild, því eins hrikalegar og afleiðingarnar af þessum fyrstu skrefum verða þá er um leið verið að opna á áframhaldandi álögur, hækkanir, aukinn kostnað á íslenskan almenning og þá munu framtíðarríkisstjórnir eiga mun erfiðara með að koma vörnum við eftir að þessi ríkisstjórn er búin, einu sinni sem oftar, að gefast upp á að verja íslenska hagsmuni.