viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég ætla að leyfa mér að segja að við erum greinilega alveg á öndverðum meiði hvað varðar uppleggið í þessu. Það kemur kannski ekki hv. þingmanni eða öðrum á óvart. En mig langar samt að spyrja hv. þingmann öðru sinni og þá kannski orða spurninguna öðruvísi: Er hv. þingmaður sammála mér og mörgum öðrum, eftir því sem ég kemst næst, um mikilvægi þess að við gerum allt sem við getum til að draga úr áhrifum mannsins á loftslagið, þ.e. draga úr loftslagsáhrifum hér á jörð? Með öðrum orðum, viðurkennir hv. þingmaður að þetta er einn stærsti vandi sem við glímum við í samtímanum, þ.e. loftslagsváin?